störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ef eitthvað lá fyrir eftir sveitarstjórnarkosningarnar var það ákall almennings um lýðræðisumbætur. Fyrir allsherjarnefnd hefur legið mál sem ég tel einna best til þess fallið að auka einmitt þessar lýðræðisumbætur og það er frumvarp um persónukjör. Flokksþing Framsóknarflokksins ályktaði í janúar 2009 að það skyldi ráðist í persónukjör og við ákváðum einnig að fara skyldi í stjórnlagaþing vegna þess að við töldum að þessi tvö atriði mundu auka á lýðræðið í landinu.
Í gær frétti ég að greidd hefðu verið atkvæði í allsherjarnefnd um hvort taka ætti málið út. Einungis fulltrúar Framsóknarflokksins, Hreyfingarinnar og hv. þm. Þráinn Bertelsson voru því fylgjandi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna höfnuðu því að taka málið út. Samt hef ég heyrt að það sé fullbúið, fullrætt og í rauninni sé ekki eftir neinu að bíða. Mig langar því að spyrja hv. formann allsherjarnefndar, Róbert Marshall, hvort hann sé ekki reiðubúinn að beita sér fyrir því að við klárum þetta mál fyrir lok Alþingis. Ég held nefnilega að einmitt nú sé tíminn. Núna er umræðan, núna er ákallið frá þjóðinni og ég óttast að tefjist málið lengur og verði því frestað eins og var gert síðast muni það fjara út.