orð þingmanns í umræðu um störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er dapurlegt að hv. þingmaður skuli bara halda áfram og bæta í, en það eru nokkur atriði sem ég tel rétt að komi fram fyrst búið er að vekja máls á þessu. Þó vil ég fyrst gera athugasemd við það hvers vegna þetta mál kemur hér allt í einu upp. Er það ekki eingöngu vegna þess að sá maður sem varð hér fyrir svívirðilegum ásökunum, hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson, hefur gagnrýnt ríkisstjórnina mjög harkalega undanfarna daga? Því er ekki svarað með því að svara gagnrýninni, svara þeim spurningum sem voru lagðar fram, því er svarað með rógsherferð gegn viðkomandi þingmanni, m.a. með hreinum ósannindum í þessu Icesave-máli þar sem því er haldið fram að stjórnarandstaðan hafi haft einhver sérstök tengsl við þessa lögfræðistofu. Hún kom til sögunnar vegna þess að ríkisstjórnin, Vinstri grænir og Samfylkingin, réð hana upphaflega til að skoða málið fyrir Ísland. Hún skilaði drögum að skýrslu sem var stungið undir stól, menn áttu ekki að fá að sjá þá skýrslu. Þá (Forseti hringir.) lá beinast við að klára þá vinnu. (Forseti hringir.) Þannig kom þetta til sögunnar og þessi kostnaður upp á 22 millj. kr. samsvarar u.þ.b. fimm (Forseti hringir.) klukkustunda vaxtakostnaði af Icesave-málinu. (VigH: Rétt.)