138. löggjafarþing — 135. fundur,  10. júní 2010.

orð þingmanns í umræðu um störf þingsins.

[12:51]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að nauðsynlegt sé fyrir þingheim að virðulegur forseti ávíti hv. þm. Björn Val Gíslason. Ef ekki þá er búið að setja hér algerlega nýja staðla í fundarsköpum og ræðulist á þingi. Ég krefst þess að það verði gert nú þegar. Við hv. þm. Björn Val Gíslason segi ég einfaldlega: Skömm þín er mikil. Kanntu virkilega ekki að skammast þín?