bólusetning gegn HPV-smiti og leghálskrabbameini.
Virðulegur forseti. Við greiðum atkvæði um enn eitt þingmannamálið, þ.e. að hefja bólusetningar gegn HPV-smiti og leghálskrabbameini. Við erum að forgangsraða. Það á að byrja á pneumókokkasýkingum ungbarna og síðan taka við þessar bólusetningar gegn leghálskrabbameini. Þetta er ekki tímasett en þingið er að gefa forgangsröðun til kynna til hæstv. heilbrigðisráðherra.
Ég vil draga fram að þetta mál var frekar seint á ferðinni eins og pneumókokkasýkingarnar en við erum að samþykkja það nú. Ég vil sérstaklega undirstrika að ef fyrrverandi hv. þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem er 1. flutningsmaður þessa máls, hefði ekki lagt gríðarlega mikla vinnu í greinargerðina með þessu máli værum við ekki að samþykkja það. Ég tel að sérstök ástæða sé til að þakka fyrrverandi hv. þm. Steinunni Valdísi Óskarsdóttur fyrir þá vinnu sem hún lagði í þetta mál. Þess vegna var okkur unnt að samþykkja það núna. Það er með gleði að ég segi já við þessari tillögu.