138. löggjafarþing — 135. fundur,  10. júní 2010.

tekjuskattur.

659. mál
[14:59]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum um tekjuskatt. Það varðar skattalega meðferð á eftirgjöf skulda. Um er að ræða tvö ákvæði til bráðabirgða sem varða þetta efni, sem sagt meðferð á eftirgjöf skulda hjá móttakanda eftirgjafarinnar, annars vegar hjá lögaðilum og aðilum í sjálfstæðum atvinnurekstri og hins vegar hjá einstaklingum. Lagt er til í frumvarpinu að um tímabundnar ráðstafanir sé að ræða og að ákvæðin nái til tekjuáranna 2009, 2010 og 2011.

Fyrst um þá aðila sem stunda atvinnurekstur. Samkvæmt núgildandi lögum um tekjuskatt ber í öllum tilvikum að telja til skattskyldra tekna eftirgjöf skulda sem tengjast atvinnurekstri. Sú regla er ótvíræð og er með frumvarpi þessu ekki lögð til nein breyting á þeirri grundvallarreglu að öðru leyti en því að tímabundið verður að uppfylltum, tilteknum skilyrðum heimilt að telja einungis ákveðinn hluta þeirrar fjárhæðar sem gefin er eftir til skattskyldra tekna. Með öðrum orðum er í þessu frumvarpi lagt til að lögaðilum og þeim mönnum sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi verði heimilt að uppfylltum ákveðnum skilyrðum að telja einungis til tekna 50% af eftirgjöf skuldar vegna rekstrar- og greiðsluerfiðleika upp að samtals 50 millj. kr. og 25% af eftirgjöf umfram samtals 50 millj. kr.

Jafnframt þykir nauðsynlegt að kveða sérstaklega á um það að ef gerðar eru breytingar á lánskjörum teljist slíkt til skilmálabreytinga en ekki eiginlegrar eftirgjafar á skuld í skilningi tekjuskattslaga. Hér er átt við að lán séu núvirt eftir venjubundnum aðferðum og eðlilegum forsendum og síðan umbreytt yfir í annars konar lán eða lánskjör. Dæmi um slíkt er breyting á gengistryggðu láni yfir í íslenskt krónulán á sambærilegum kjörum og almennt gerist um slík lán. Sé gerð slík skilmálabreyting á láni sem tilheyrir atvinnurekstri, hvort heldur er lögaðila eða sjálfstætt starfandi manns, og um lækkun á uppreiknuðum eftirstöðvum lánsins er að ræða myndar slík lækkun ekki skattskyldar rekstrartekjur samkvæmt tillögum frumvarpsins. Samtímis þarf að leiðrétta gjaldfærðan fjármagnskostnað til samræmis við þessa skilmálabreytingu, enda verður ekki færður til gjalda kostnaður sem í raun fellur ekki á rekstraraðilann.

Í flestum tilvikum er staða þeirra rekstraraðila sem fá eftirgefnar skuldir með þeim hætti að rekstrartap er verulegt og gengur á móti tekjufærslunni. Við þær aðstæður kemur því í raun ekki til neinnar skattlagningar vegna tekjufærslu á eftirgefnum skuldum. Gert er ráð fyrir að rekstrartap ársins og yfirfært tap vegna fyrri ára verði alltaf jafnað fyrst á móti tekjufærslu áður en fjárhæð skattskyldrar eftirgjafar er ákvörðuð í samræmi við tillögu frumvarpsins. Í frumvarpinu er einnig að finna tillögu um að heimiluð verði sérstök fyrning til viðbótar almennri fyrningu á móti þeirri tekjufærslu sem skapast vegna eftirgjafarinnar áður en henni er dreift á þrjú ár. Nýti skattaðili heimild til að dreifa tekjufærslu skal sú ákvörðun tekin á því ári sem skuld er gefin eftir. Umræddar heimildir gilda þó ekki þegar um er að ræða eftirgjöf skuldar milli móður- og dótturfélaga vegna hættu á misnotkun ákvæðisins.

Þá að einstaklingunum, frú forseti. Í 7. gr. gildandi laga um tekjuskatt segir að til skattskyldra tekna teljist hvers konar gæði, arður, laun og hagnaður sem skattaðila hlotnast og metin verða til peningaverðs og skiptir ekki máli hvaðan þær stafa eða í hvaða formi þær eru. Á grundvelli þessa ákvæðis er almenna reglan sú að eftirgjöf skulda telst til skattskyldra tekna. Sú regla er þó ekki fortakslaus í tilviki einstaklinga því að í 3. tölulið 28. gr. sömu laga er að finna ákvæði sem tekur til eftirgjafar á skuldum og þeirra skilyrða sem þurfa að vera til staðar eigi ekki að koma til tekjufærslu á eignaauka eða aukningu ráðstöfunartekna sem hlýst af eftirgjöfinni. Þannig skapast ekki skattskylda hafi eftirgjöf orðið til við í fyrsta lagi nauðasamninga, í öðru lagi nauðasamninga til greiðsluaðlögunar eða í þriðja lagi í sérstökum tilvikum að uppfylltum tilteknum skilyrðum sem er að finna í reglugerð nr. 534/2009. Í 2. mgr. 3. gr. þeirrar reglugerðar kemur m.a. fram að eftirgjöf skuldar teljist ekki til tekna ef engar eignir eru til fyrir skuldum eða allar eignir manna eru yfirveðsettar. Þá er gert að skilyrði að aflahæfi sé verulega skert. Þannig kemur almennt ekki til skattlagningar þótt skuldir manna séu gefnar eftir ef þeir eru eignalausir eða þeir skuldum vafnir, aflahæfi þeirra er skert og þeir því ekki borgunarmenn fyrir skuldunum samkvæmt hlutlægu mati þar um.

Sértæk skuldaaðlögun, sbr. lög nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishruns, mun nær undantekningarlaust falla undir þau skilyrði sem er að finna í áðurnefndri reglugerð þegar kemur að uppgjöri skuldanna samkvæmt lögum, enda sé úrræðið framkvæmt á þann veg sem til var stofnað. Allt að einu er, til að taka af allan vafa, lagt til í þessu frumvarpi að sérstaklega verði kveðið á um að gangi maður í gegnum sértæka skuldaaðlögun teljist slíkt ekki til eftirgjafar skulda í skilningi tekjuskattslaga, heldur falli undir skilmálabreytingar sem almennt hafa ekki í för með sér skattskyldu. Þess utan kemur ekki til skattlagningar ef samið er um almennar skilmálabreytingar á lánum sem bjóðast öllum sem eru í sömu eða álíka fjárhagslegri stöðu, þar með talin sjálfvirk greiðslujöfnun samkvæmt lögum nr. 107/2009 og tímabundin greiðsluaðlögun samkvæmt lögum nr. 50/2009, um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði. Samkvæmt þessu, og með hliðsjón af þeim úrræðum sem lánastofnanir og ríkisvaldið hafa boðið skuldurum upp á og sammælst um, skapast almennt ekki skattskylda þótt skuldir séu lækkaðar.

Með skilmálabreytingum er að jafnaði átt við að lán séu núvirt eftir venjubundnum aðferðum og á eðlilegum forsendum og breytt yfir í annars konar lán eða lánakjör. Þessi almennu úrræði hafa verið auglýst og boðin skuldurum hjá lánastofnunum. Skattyfirvöld hafa nú þegar svarað því til að því er varðar skuldir einstaklinga utan atvinnurekstrar að við slíkar aðgerðir stofnist ekki andlag skattlagningar, enda sé einungis um að ræða breytingu á skilmálum lánsins en ekki eiginlega eftirgjöf skuldar í skilningi tekjuskattslaga. Hér undir falla jafnframt þær aðgerðir lánastofnana að breyta gengistryggðu láni yfir í íslenskt krónulán á sambærilegum kjörum og almennt gerist um slík lán. Við slíka breytingu er gerð leiðrétting á uppreiknaðri lánsfjárhæð, í flestum tilvikum u.þ.b. 25–30% lækkun, og þannig ákvarðaðri fjárhæð breytt í lán í íslenskum krónum.

Þess utan er í bráðabirgðaákvæði b í þessu frumvarpi lögð til sérstök ívilnun, eða tiltekið skattfrelsi, í tilviki eftirgjafar á skuldum hjá einstaklingum þar sem skilyrði 3. tölul. 28. gr. eiga ekki við eða ekki er um að ræða skilmálabreytingar eins og áður var lýst. Tillagan er sú að almennt verði heimilt að telja ekki til tekna allt að samtals 10 millj. kr. hjá einstaklingi og samtals 20 millj. kr. hjá hjónum, eða samsköttuðum aðilum, af eftirgefnum skuldum vegna greiðsluerfiðleika. Fari eftirgjöf fram úr tilgreindum fjárhæðum má falla frá tekjufærslu sem nemur 50% af eftirgjöfinni, að hámarki samtals 20 millj. kr. hjá einstaklingi og samtals 40 millj. kr. hjá hjónum eða samsköttuðum og 25% af eftirgjöfinni umfram samtals 20 millj. kr. hjá einstaklingi og samtals 40 millj. kr. hjá hjónum eða samsköttuðum. Heimilt verður að fresta skattlagningu um tvö ár og að þeim tíma liðnum dreifa tekjufærslunni með jöfnum hætti á fimm ár.

Verði frumvarp þetta að lögum má ætla að komið hafi verið til móts við meginþorra skuldara sem eru í greiðsluerfiðleikum vegna veðskulda. Samkvæmt skattframtölum 2009 námu heildarskuldir u.þ.b. 90% framteljenda lægri fjárhæð en 30 millj. kr. Ætla verður því að þeir framteljendur sem skulda meira en þetta nýti sér sérstök skuldaúrræði og að um eftirgjöf skulda þeirra gildi í flestum tilvikum 3. tölul. 28. gr. laganna.

Í frumvarpinu er jafnframt til varúðar gert ráð fyrir því að ríkisskattstjóri geti við sérstakar aðstæður lækkað tekjuskattsstofn manna sem myndast hefur vegna eftirgjafar veðskulda. Gera verður ráð fyrir því að þessi heimild yrði nýtt þegar aðstæður manna, svo sem vegna atvinnumissis, eru með þeim hætti að engin efni eru til að greiða skattskuld sem myndast vegna tekjufærslu þessarar. Slík tilvik ættu þó að heyra til undantekninga, enda eru ívilnandi áhrif frumvarpsins á tekjufærslu í þessu sambandi með þeim hætti að tekur til þorra skuldara. Ætla má að um 95% þeirra sem í hlut eiga verði lausir við alla skattskyldu sjálfkrafa vegna hinna ívilnandi ákvæða frumvarpsins, þ.e. annars vegar þess að afgreiða með skýrum hætti að allt sem flokkast undir skilmálabreytingar er sjálfkrafa undanskilið og þau fjárhæðarmörk sem þar til viðbótar koma vegna frekari lækkunar höfuðstóls virðast, miðað við nýjustu gögn um upphæðir skuldanna, leiða til þess að yfirgnæfandi meiri hluti allra sem í hlut eiga verður laus undan allri skattskyldu. Eingöngu þau tilvik þar sem um hæstu fjárhæðirnar er að ræða koma þá til skoðunar samkvæmt þeim reglum og með þeim þó undanþágum og ívilnandi möguleikum sem frumvarpið býður upp á í slíkum tilvikum. Sé um að ræða eftirgjöf upprunalegs höfuðstóls láns að teknu tilliti til afborgana skal ætíð telja þann hluta til skattskyldra tekna skuldarans. Gert er ráð fyrir að nánar verði kveðið á um þessa framkvæmd í reglugerð.

Að því er varðar eftirgjöf bílalána verður að álíta að þær fjárhæðir sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði skattfrjálsar séu í öllum tilvikum það háar að slík eftirgjöf bílalána rúmist vel innan þeirra marka.

Eins og áður sagði og til frekari áréttingar tekur fyrrgreind 28. gr. tekjuskattslaga ekki til þeirra tilvika þar sem um er að ræða eftirgjöf skulda í frjálsum samningum milli aðila án tillits til greiðslu- og eignastöðu skuldara. Því er frumvarpi þessu í raun ætlað að vera viðbótarúrræði við þau formlegu úrræði sem þegar hafa verið talin upp, m.a. við þær aðstæður þegar lækkun skulda manna er framkvæmd með öðrum hætti en það sem beinlínis telst falla undir skilmálabreytingu láns, eins og áður sagði, og ákvæði 3. tölul. 28. gr. eiga ekki við um skuldara. Á það m.a. við um þær leiðir sem auglýstar hafa verið sem lækkun skulda niður í allt að 110% af virði fasteignar. Í slíkum tilvikum kann leiðrétting t.d. að vera umfram það sem leiðir af breytingu úr gengistryggðu láni í íslenskt krónulán.

Þegar svo háttar til mundi sá hluti lækkunarinnar, þ.e. breytingin úr gjaldeyrisláni yfir í krónulán, falla undir skilmálabreytingu en ákvæði frumvarpsins og ívilnanir þess giltu um það sem eftir stæði. Samkvæmt þeim gögnum og upplýsingum sem fyrir liggja um skuldastöðu heimilanna eins og áður sagði kæmi samkvæmt þessu í langflestum tilvikum ekki til neinnar skattskyldu vegna leiðréttingar og eftirgjafar á veðskuldum manna. Á þetta við um veðskuldir, hvort sem tilefni lántökunnar er húsnæðis- eða bílakaup.

Tilgangur frumvarpsins er að koma þeim sem alla jafna ættu að geta staðið í skilum með skuldbindingar sínar til tímabundinnar aðstoðar vegna greiðsluerfiðleika sem ella hefðu getað leitt þá í greiðsluþrot. Með þessum aðgerðum er leitast við að aðstoða fólk og um leið reyna að hindra að samdráttur í einkaneyslu verði meiri en ella hefði orðið að óbreyttu og þar með í hagkerfinu almennt sem mun skapa auknar tekjur fyrir ríkissjóð og bættan þjóðarhag. Afar erfitt er að meta hversu þungt þau áhrif geta vegið og hefur ekki farið fram sérstök skoðun á samanlögðum áhrifum af því og þeirri lækkun tekjustofna lögaðila og einstaklinga sem leitt geta af ákvæðum þessa frumvarps.

Þá verður ekki séð að frumvarpið sem lög muni að óbreyttu hafa í för með sér nein teljandi aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Erfitt er þó að meta hver áhrif frumvarpsins gætu orðið á hina hliðina, enda tilgangur þess fyrst og fremst sá að greiða fyrir þeim skuldaendurskipulagningaraðgerðum sem nú eru í gangi og þurfa að ganga fyrir sig þannig að bankar og lánastofnanir vinni hiklaust að því verkefni að endurskipuleggja fjárhag fyrirtækja og einstaklinga eins og kostur er og aðstoða báða aðila í gegnum erfiðleikana. Með þessu er ríkið sannarlega að leggja sitt af mörkum því að hér eru útfærðar miklar ívilnanir og umtalsvert frávik frá hinni almennu grunnreglu skattalaganna sem ég fór yfir í byrjun máls míns. Ég tel að með þessu sé náð vel utan um þetta mál og það leyst á málefnalegan hátt þannig að yfirgnæfandi meiri hluti allra geti orðið sáttur við, jafnt lögaðilar og aðilar í atvinnurekstri sem og einstaklingarnir, án þess þó að grundvallarreglu skattaréttarins sé fórnað og því haldið til haga að hægt er að meta sérstaklega aðstæður, t.d. í tilviki þess að um mjög háar fjárhæðir er að ræða hjá einstaklingum sem hugsanlega hafa fengið í frjálsum samningum umtalsverða niðurfærslu skulda án þess að þurfa að hrófla við eignastöðu sinni að öðru leyti.

Ég minni þó á og vek athygli á að í öllum tilvikum tekur ríkið umtalsverðan þátt í aðgerðum samkvæmt þessu frumvarpi því að visst hlutfall niðurfellingarinnar er undanþegið skattskyldu án nokkurra fjárhæðarmarka, a.m.k. fjórðungur í tilvikum einstaklinganna óháð fjárhæðum, helmingur á ákveðnu tekjubili og allt þar fyrir neðan.

Von mín er að með þessu máli sé náð utan um þetta mikilsverða verkefni. Þetta tengist að sjálfsögðu þeim frumvörpum sem hér eru til meðferðar, og til umfjöllunar í þingnefndum, sérstaklega frumvörpum fluttum af hæstv. félagsmálaráðherra sem tengjast greiðsluvanda heimilanna. Það er sömuleiðis mikilvægt að þessar reglur liggi skýrt fyrir og von mín er sú að Alþingi nái, þrátt fyrir skamman tíma, að afgreiða þetta mál farsællega þannig að áður en til álagningar kemur síðari hluta sumarsins liggi reglurnar fyrir. Þetta tekur til niðurfellingar strax á árinu 2009 þannig að það er mikilvægt að það sé haft í huga.

Ég hlýt að biðjast velvirðingar á því að frumvarpið kemur mjög seint fram. Það má gagnrýna með réttu, en það á sér m.a. þær ástæður að gríðarleg vinna var lögð í undirbúning þess sem greinargerð frumvarpsins ber skýrt vitni. Það var reynt að fara í eins tæmandi lögskýringar í greinargerðinni og nokkur kostur var og ná eins vel utan um málið í heild sinni og hægt væri þannig að vafaatriði væru fá, helst engin, og það lægi sem allra skýrast fyrir hvernig með þessi mál verður farið. Það kostaði heilmikla vinnu og mikið samráð við sérfræðinga á sviði skattaréttar. Þetta mál var unnið náið með ríkisskattstjóraembættinu og sömuleiðis var haft samráð við Samtök fjármálafyrirtækja og fleiri aðila til að reyna að ná sem best utan um málið.

Að endingu varð niðurstaðan sú að færa upp úr greinargerðinni hluta þessara lögskýringa inn í lagatextann sjálfan þannig að tekinn væri t.d. af allur vafi um að allt sem fellur undir skilmálabreytingar eða tilheyrir hinum almennu viðurkenndu úrræðum, sem hér hafa ýmist verið lögtekin eða stendur til að lögtaka, væri sjálfkrafa meðhöndlað í sjálfum lagatextanum. Vonandi er þá málið þannig lagað séð komið í þann búning að ekki eigi að þurfa að deila um efni þess.

Einhverjir kunna að hafa þau sjónarmið að enn lengra eigi að ganga í þessum efnum en þá verð ég að leyfa mér að minna á að það er mikilvægt að finna þá leið sem varðveitir og heldur til haga grundvallarreglu skattaréttarins í þessum efnum. Frá henni er erfitt að veita afslátt öðruvísi en á málefnalegum skilgreindum forsendum og innan einhverra hóflegra marka þannig að upp á síðari tíma, upp á jafnræði og upp á það sem að baki er séu málefnalegar forsendur lagðar til grundvallar þátttöku hins opinbera í þessum aðgerðum að þessu leytinu til. Hér er að sjálfsögðu mikið lagt af mörkum til að þessar skuldaendurskipulagningaraðgerðir geti allar gengið sem best fyrir sig.

Að þessu sögðu, frú forseti, lýk ég máli mínu og legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og 2. umr. að lokinni þessari.