138. löggjafarþing — 135. fundur,  10. júní 2010.

tekjuskattur.

659. mál
[16:22]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er tiltölulega einfalt. Ef ekkert rekstrartap væri mynduðu þær 40 millj. kr. sem í dæminu eru settar upp sem rekstrartap, andlag skattlagningar að hálfu, 50%. Þær tækju þá stærstan hluta fjárhæðarinnar og síðan myndar það sem er umfram 50 millj. kr. andlag skattlagningar að þremur fjórðu. Væri fyrirtækið þannig statt að það ætti engar fyrnanlegar fjárfestingar á móti þessu, ef það hefur hvorki tap né neinar ófyrndar fjárfestingar sem það hefur ráðist í, þá gæti skuldaniðurfellingin að þessu leyti til sætt 50% skattlagningu upp að 50 millj. kr. og þar fyrir ofan 25%. Þá minni ég auðvitað hv. þingmann á, sem ég veit að þarf ekki að gera, að tekjuskattsprósentan er síðan 15% eða 18% af því, þannig að menn mega ekki rugla því saman við þann raunverulega skatt sem síðan verður greiddur.

Ég hygg að það verði afar fá fyrirtæki, sem eru komin í þá erfiðu stöðu að þau þurfa að leita til lánardottna sinna um beina niðurfellingu skulda umfram skilmálabreytingar, sem hafa hvorki neitt tap — því að hvers vegna væru þau þá í þessum mikla skuldavanda? — né neinar fyrnanlegar fjárfestingar. Skuldirnar hljóta að stafa af einhverju ef allt er með felldu. Ef farið er betur yfir þetta þá á að vera sáralítil ástæða til að óttast það að þessar reglur verki ekki eins og þeim er vissulega ætlað að gera, að vera hvetjandi til að laga skuldastöðuna, með þátttöku ríkisins. Því litla sem til skattlagningar kemur, með þeirri vægu prósentu sem var innleidd á skattlagningu hagnaðar lögaðila, geta menn síðan dreift á langan tíma. Reglurnar eru mjög rúmar hvað það snertir að standa skil á því litla sem út af stendur og kemur til skattlagningar.

Ég hef ýmsar upplýsingar sem ég hef ekki tíma til að fara með núna, virðulegur forseti, um þau gríðarlegu uppsöfnuðu töp sem því miður eru geymd í rekstrarfélögum og einkahlutafélögum. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því sem fjármálaráðherra að það líði langur tími þangað til við förum að fá einhverjar almennilegar skattgreiðslur aftur vegna hinna miklu uppsöfnuðu tapa.