tekjuskattur.
Frú forseti. Kerfisvillan, eða hugsanavillan eins og hv. þingmaður vill kalla það, er sú að í 30 ár, frá 1950–1980, voru vextir sem Seðlabankinn ákvað lægri en verðbólga. Skuldarar græddu stöðugt og sparifjáreigendur töpuðu stöðugt og ekki nóg með það, skuldarar gátu dregið vexti frá skatti, vexti sem þeir græddu á. Þegar menn sáu þetta misræmi ákváðu þeir að hætta að leyfa frádrátt vaxta en þá kom fram þetta misræmi sem hv. þingmaður er að tala um. Þegar vextirnir urðu svona miklir, eða vaxtagjöldin, eins og hækkun á erlendum lánum undanfarið, þá kom misræmið fram. Í staðinn fyrir að menn gætu dregið það frá skatti, væru sem sagt tekjuskattslausir í einhver ár, eins og ætti að vera með bílalánin og allt það, menn ættu í raun að vera tekjuskattslausir, eru búnir að tapa alveg óhemju á þessum lánum, þá væri kannski eðlilegt að segja að niðurfelling skuldanna væri tekjur af því að þeir eru búnir að draga það frá skatti. En vegna þess að þetta er ekki lengur til staðar, frádráttur vaxtagjalda, þá er þetta kerfisvilla. Af þessu verða menn að taka mið í allri umræðunni og mér finnst frumvarpið ekki taka mið af þessu. Hæstv. fjármálaráðherra virðist ekki heldur átta sig á þessu.
Grunnurinn er sá að hætt var að leyfa frádrátt vaxtagjalda og að vaxtatekjur væru skattskyldar sem tekjuskattur. Það var hætt við það á sínum tíma vegna þess að sparnaður landsins var að hrynja, þá var hætt að skattleggja vexti. Seinna meir var tekinn upp almennur og allt annar skattur á fjármagnstekjur og það með vöxtum, 10%, en það er önnur saga.