138. löggjafarþing — 135. fundur,  10. júní 2010.

tekjuskattur.

659. mál
[17:56]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir að fara yfir þetta mál. Það var einmitt farið yfir það þegar við ræddum um stofnun nýju bankanna. Ég tek undir það með hv. þingmanni og fagnaði því þegar það heppnaðist að endurreisa bankakerfið frá grunni með þeim hætti sem gert var.

Það sem ég kom að í ræðu minni var að við ættum að viðurkenna gagnvart heimilunum og fjölskyldunum í landinu þann forsendubrest sem varð. Ég geri mér fulla grein fyrir því, eins og hv. þm. Pétur H. Blöndal talaði um hér, að það að stofna nýju bankana og setja þá undir gömlu bankana til að losna við öll málaferli var mjög snjallt. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um það, en þá stöndum við alltaf eftir með þetta, af því að við erum að ræða þetta takmarkaða mál: Ef menn fá niðurfellingu skulda, sem ég vil a.m.k. í sumum tilfellum eða flestum kalla leiðréttingu skulda, á enginn vafi að leika á því að það sé ekki skattskylt nema um gjafagjörning sé að ræða. Þetta er mín persónulega skoðun.

Ég fór yfir það í ræðu minni áðan að hæstv. fjármálaráðherra sagði í ræðu eða í andsvörum að þetta mundi ná til nánast allra. Af hverju þurfum við að vera með eitthvert ef og kannski í sambandi við það? Af hverju getur þetta ekki verið með þeim einfalda hætti að niðurfelling skulda hjá einstaklingum sé ekki skattskyld? Mér finnst þetta ekki flóknara en það.