138. löggjafarþing — 136. fundur,  10. júní 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[19:00]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta viðskn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi fyrirspurn hv. þm. Tryggva Þórs Herbertssonar erum við ekki enn þá búin að hafa sigur í því að við séum hér komin með eina nefnd sem tæki alla þessa hluti fyrir. Við munum reyna að ná niðurstöðu í það mál. Mín skoðun er að glöggt sé gests augað og ég held að það væri mjög gott fyrir okkur á þessum tímapunkti að fá sjónarmið OECD. Það er ekkert víst að við verðum sammála þeim í einu og öllu, en ég held að það væri mjög fróðlegt fyrir okkur að vera með það sjónarmið og slíka úttekt sem mun alltaf nýtast okkur.

Á sama tíma tek ég skýrt fram að ég tel að það skipti gríðarlega miklu máli að við séum með mjög tímasetta áætlun um hvernig við vinnum þetta. Ég hef engan áhuga á því að ganga frá þessu máli og öðrum mikilvægum þannig að það sé í lausu lofti hvenær hvaða þáttur verður kláraður. Þvert á móti tel ég að það liggi á öllum þessum hlutum en við skulum ekki stíga skref sem eru þess eðlis að við þurfum að stíga síðan til baka og leiðrétta einhver mistök. Tímasetningar eru alveg lykilatriði í öllum þessum þáttum sem við nefndum.

Enn og aftur vísa ég í mistökin með sparisjóðina. Þar voru menn að flýta sér með þeim rökum að það þyrfti að gerast einn, tveir og tíu af því að það þyrfti að endurreisa sparisjóðina. Menn gerðu síðan ekkert í því í níu eða tíu mánuði, ekki neitt, og eftir stendur að við erum enn þá með sama vandamálið varðandi sparisjóðina og við vorum með þá.