fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég óska eftir að forseti ráðfæri sig við aðalforsetann um hvort ekki væri möguleiki á að fresta þessari umræðu þar til samræmingarnefndin er búin að funda. Þetta er mjög mikilvægt mál sem ég vil gjarnan fá að taka til máls um. Ég veit að hv. þm. Margrét Tryggvadóttir vill það, og hv. þm. Lilja Mósesdóttir á eftir að flytja um það framhaldsnefndarálit frá meiri hlutanum. Það var ætlunin að taka kvöldverðarhléið núna á eftir í að funda um það hvort ekki væri hægt að færa þennan dagskrárlið aftur, a.m.k. þar til samræmingarnefndin væri búin að funda og við gætum þá tekið málið upp aftur. Ég lýsi mig tilbúna til að vera hérna langt fram á nótt ef það yrði til að liðka fyrir störfum þingsins. Það hlýtur að vera eðlilegt að við sem höfum unnið við þetta mál í vetur fáum að klára umræðuna.