138. löggjafarþing — 136. fundur,  10. júní 2010.

hafnalög.

525. mál
[20:31]
Horfa

Frsm. samgn. (Björn Valur Gíslason) (Vg):

Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 1260 um frumvarp til laga um breytingar á hafnalögum, nr. 61/2003, með síðari breytingum.

Nefndin kallaði til fundar við sig fjölmarga aðila og fór yfir umsagnir fjölmargra aðila um þetta þingmál eins og fram kemur í nefndarálitinu.

Í frumvarpinu er lagt til að grundvelli fyrir innheimtu aflagjalds verði veitt skýrari lagastoð en verið hefur. Þá er með frumvarpinu stefnt að því að styrkja grundvöll gjaldtöku hafna í opinberri eigu með því að kveða skýrar á um setningu gjaldskrár, forsendur hennar og upplýsingaskyldu til notenda hafna. Að lokum er lagt til að ákvæði til bráðabirgða, um framkvæmdastyrki til hafna, verði framlengt um tvö ár, m.a. í ljósi erfiðra rekstrarskilyrða hafna hér á landi.

Á fundum nefndarinnar voru ákvæði frumvarpsins rædd og einkum það álitamál hvort heimild til innheimtu aflagjalds fæli í sér heimild til innheimtu skatts eða töku þjónustugjalds. Skiptar skoðanir komu fram um framangreint, ekki síst í ljósi þess að ákvæðið felur í sér breytingu á lagagrein hafnalaga þess efnis að þjónustugjaldaheimildir verði þar tilgreindar ásamt efri og neðri mörkum hlutfalls aflaverðmætis. Fyrir nefndinni kom þó fram nokkur stuðningur við þær breytingar á lögunum sem frumvarpið kveður á um. Var nefndin hvött til þess að leggja til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt enda væri með því komið til móts við fram komnar óskir um breytingar á lögunum.

Nefndin ræddi rökin fyrir því að setja neðri og efri mörk á upphæð aflagjalds að teknu tilliti til hagsmuna hafna sem samkvæmt bókstaf laganna eiga í samkeppni hver við aðra og hagsmuna útgerða sem margar eiga mikið undir því að gjaldtaka verði ekki of íþyngjandi. Fram komu sjónarmið um að neðri mörkin reistu skorður við því að hafnir undirbyðu hver aðra en efri mörkin væru sett með hagsmuni viðskiptavina þeirra að leiðarljósi.

Nefndin ræddi einnig hvort nauðsynlegt væri að framlengja aðlögunartíma samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögunum eins og 3. gr. frumvarpsins kveður á um. Fram kom að niðurskurður á fjárlögum undanfarin ár hafi gert það að verkum að markmið téðs bráðabirgðaákvæðis um jafnsetningu hafi ekki náðst. Í því ljósi telur nefndin meginreglu hafnalaga um styrki til framkvæmda í höfnum ekki hæfa til að ná því markmiði sem með henni er að stefnt eins og stendur.

Loks leggur nefndin til nokkrar tæknilegar breytingar á 2. gr. frumvarpsins sem hér segir:

Við 2. gr.

a. D-liður orðist svo: Við 1. tölul. 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Aflagjald af sjávarafurðum sem umskipað er, lestaðar eru eða losaðar í höfnum. Sé gjaldið innheimt skal það vera minnst 1,25% og mest 3% af heildaraflaverðmæti. Þó skal gjaldið vera minnst 0,70% af heildaraflaverðmæti frystra sjávarafurða. Sjávarafurðir eru sjávarafli, þ.e. sjávardýr önnur en spendýr, þ.m.t. skrápdýr, liðdýr og lindýr, sem og matvæli sem eru unnin að öllu leyti eða að hluta úr sjávarafla.

b. Á eftir d-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Í stað orðanna „skv. a-, c- og d-lið“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: skv. a-, c-, d- og e-lið.

c. Í stað orðanna „2.–10. tölul.“ í e-lið komi: 2.–10. tölul. 2. mgr.

d. Á eftir e-lið komi nýr stafliður er orðist svo: Í stað orðanna „1. og 2. tölul. 1. mgr.“ í 4. mgr. kemur: 1. og 2. tölul. 2. mgr.

Ég hef hlaupið hér yfir aðalefni nefndarálitsins og umfjöllun samgöngunefndar um málið.

Fjarverandi við afgreiðslu málsins í samgöngunefnd voru Árni Johnsen, Ólína Þorvarðardóttir og Mörður Árnason.

Undir nefndarálitið skrifa Björn Valur Gíslason, Róbert Marshall, Anna Margrét Guðjónsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ásbjörn Óttarsson.