138. löggjafarþing — 137. fundur,  11. júní 2010.

vatnalög og réttindi landeigenda.

[12:10]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Hinn gamli Sjálfstæðisflokkur er farinn að gægjast aftur í gegnum tjöldin sem búið var að sveipa hann, síðustu missirin a.m.k., og það verður gaman að sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi náð því taki á Framsóknarflokknum hinum nýja að Framsóknarflokkurinn styðji Sjálfstæðisflokkinn í áframhaldandi einkavæðingarvitleysu. Það sem skiptir máli er að menn standi við samkomulag. (Gripið fram í.) Það var gert samkomulag um sérstaka nefnd og nefndin sem einn af hinum efnilegu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sat í, ég ætlaði að segja ungtyrkjum, hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson — hann sat þar og hann er nú nálægt hv. þm. Bjarna Benediktssyni að skoðunum. Hann var aðili að samkomulagi sem fól í sér að gerð yrðu ný lög á grundvelli vatnatilskipunarinnar og gömlu lögin sem voru samþykkt árið 2006 yrðu felld úr gildi. Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að hlaupa frá því? (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Það kann að vera en ekki trúi ég því að hinn nýi Framsóknarflokkur taki þátt í því spretthlaupi. (Gripið fram í.)