skuldavandi heimilanna.
Frú forseti. Það var gaman að heyra hve umhugað hæstv. utanríkisráðherra er um Framsóknarflokkinn. (Utanrrh.: Mér þykir vænt um hann.) Það hefur komið fram áður og gleður mig iðulega. Undarlegt þótti mér þó að heyra hæstv. ráðherra hafa áhyggjur af því að Framsókn kynni að fara í einkavæðingu með Sjálfstæðisflokknum. Báðir flokkar eru reyndar í stjórnarandstöðu og ég minni á að það sem þótti helst til tíðinda þegar Samfylkingin leysti Framsókn af hólmi í ríkisstjórn var að þá var hægt að einkavæða miklu meira. Þá var t.d. loksins hægt að fara að einkavæða í heilbrigðiskerfinu. Svo kemur hingað maður úr helsta aðstoðarflokki Sjálfstæðisflokksins í einkavæðingu og ætlar að dreifa athyglinni.
Nú er ég búinn að eyða allt of miklum tíma í hæstv. utanríkisráðherra því ég ætlaði að ræða við hæstv. félagsmálaráðherra um stöðu heimilanna, sem er í raun enn þá alvarlegra mál en vatnsréttindin sem voru til umræðu áðan. Getur hæstv. félagsmálaráðherra tekið undir það með mér að nýjustu tölur, og raunar tölur sem hafa komið fram áður líka, sýni svart á hvítu að óhjákvæmilegt sé að ráðast í almennar aðgerðir til að leysa skuldavanda heimilanna?
Nú sjáum við hvers lags vanmat hefur verið á stöðu mála þar. Seðlabankinn áætlaði að 23% heimila væru í verulegum vanda, ættu ekki fyrir skuldum. Þá kom á daginn að það gleymdist að taka með í reikninginn, eða einhverra hluta var það ekki gert, ýmsa útgjaldaliði heimilanna. Ekki var tekinn með í reikninginn kostnaður við tryggingar, fasteignagjöld, síma, eldsneyti og áskriftir, afborganir af námslánum voru ekki einu sinni teknar með eða kostnaður við að hafa börn í skóla. Þegar öllum þessum óhjákvæmilegu útgjaldaliðum er bætt við er líklega um helmingur íslenskra heimila í þeirri stöðu að eiga ekki fyrir skuldum. Það er neyðarástand sem kallar á aðgerðir sem menn mundu kannski ekki grípa til við eðlilegar aðstæður. Getur hæstv. félagsmálaráðherra, sem hefur talað mikið um nauðsyn þess að lækka bílalán og er það vel, tekið undir að ekki veiti af því að lækka önnur lán líka?