138. löggjafarþing — 137. fundur,  11. júní 2010.

aðild Íslands að ESB.

[12:31]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Í fullum trúnaði í þennan hóp sagt hef ég litið svo á að ég sé m.a. í þessum leiðangri til að uppfylla ályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins sem, eins og hv. þingmaður man eftir, ályktaði að flokkurinn styddi að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu á ákveðnum forsendum. (Gripið fram í.) Þær forsendur liggja fyrir. (Gripið fram í.) Fyrst hv. þingmaður er að tala um að við látum af hendi auðlindir, hvað telja sérfræðingar Evrópusambandsins sjálfs, hvað sögðu þeir í þessum sama miðli í síðustu viku? Ekki á einum fundi, heldur tveimur opinberum fundum, sögðu þeir algjörlega skýrt að reglur Evrópusambandsins væru þannig að það væru engar líkur á því að Íslendingar þyrftu að láta af hendi eitt einasta kíló af fiski. Svo einfalt er það.

Eins og ég hef áður sagt, ef hv. þingmaður vill stöðva þennan leiðangur verður hann að fara gegn eða breyta vilja Alþingis. Það er ekkert flóknara en það. Ég er að uppfylla það sem Alþingi fól mér, (Forseti hringir.) en ég trúi líka að aðild að Evrópusambandinu sé heillavænleg fyrir framtíð Íslands og barna okkar tveggja. (Forseti hringir.) (Gripið fram í: Eigið þið barn saman?) [Hlátur í þingsal.]

(Forseti (UBK): Forseti biður um hljóð í salinn.) [Kliður í þingsal.]