svar við fyrirspurn.
Frú forseti. Eins og fram kom áðan í máli mínu tók ég þátt í þverpólitískri vinnu til að ná sátt milli stjórnmálaflokkanna í svokallaðri vatnalaganefnd um það hvernig ætti að haga framtíðarskipulagi þeirrar löggjafar á Íslandi. Það varð að samkomulagi í þessari nefnd, sem Lúðvík Bergvinsson, fyrrverandi hv. þingmaður Samfylkingarinnar, stýrði að samið yrði frumvarp upp úr þeim tillögum sem við gerðum í skýrslunni og hv. þm. Skúli Helgason þekkir vel.
Mig langar til að spyrja, af því að tillögurnar eru mér skyldar, ég var einn af þeim sem samdi þær, hvort hann telji ekki eðlilegt að áður en þessi vatnalög frá 2006 — (Forseti hringir.)
(Forseti (UBK): Forseti vill beina því til hv. þingmanns að undir þessum lið ber að beina máli sínu til forseta en ekki fyrirspurnum til einstakra þingmanna.)
Ég tel eðlilegt, herra forseti, að ég fái að sjá hvernig hæstv. iðnaðarráðherra ætlar að fara með þær tillögur sem ég stóð að af miklum heilindum (Forseti hringir.) um framtíðarskipulag þessara mála og hvort það sé ekki eðlilegt, frú forseti, að það frumvarp verði lagt fram áður en tekin verður afstaða til þess að núverandi vatnalög verði felld úr gildi.