138. löggjafarþing — 137. fundur,  11. júní 2010.

lokafjárlög 2008.

391. mál
[13:22]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég er feginn því að hæstv. forseti leyfi smáslaka þó að menn séu ekki alveg búnir að berja í borðið á nákvæmlega hárréttum tíma til þess að skapa hér umræður um þau mikilvægu málefni sem við erum að greiða atkvæði um.

Ég hef hugsað mér að sitja hjá við afgreiðslu þessa frumvarps. Ég tel, eins og hv. þm. Þór Saari benti á, að betur þurfi að fara yfir orsakir hrunsins og þar á meðal hvað gerðist í Seðlabankanum á árinu 2008. Ég tel því ekki tímabært fyrir Alþingi að staðfesta frumvarp sem lokar málinu hvað tölur og annað varðar. Eins og ég sagði í upphafi mun ég því sitja hjá við afgreiðslu málsins.