138. löggjafarþing — 138. fundur,  12. júní 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[10:38]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er rétt að óska Alþingi til hamingju með að þetta mál kemur núna til atkvæðagreiðslu við 3. umr. Hér er verið að styrkja valdheimildir Fjármálaeftirlitsins, samþætta útlánaskrár fjármálafyrirtækja, hér er kveðið sterkar á um áhættuskuldbindingar, hér tökum við á lánveitingum til tengdra aðila, styrkjum hæfisreglur eigenda og eins og formaður viðskiptanefndar kom inn á erum við að gera auknar kröfur um söluskyldu fyrirtækja sem bankarnir hafa yfirtekið.

Hér er verið að stíga gott og mikilvægt skref inn í framtíðina.