138. löggjafarþing — 138. fundur,  12. júní 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[10:57]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Í umræðum um þetta mál höfum við ítrekað kalla það bútasaum. Ég hef sagt að þetta geti skapað falska öryggiskennd og friðþægingu þar sem ekki sé næstum því nægilega vel tekið á þeim vandamálum sem eru á regluverkinu sem umlykur fjármálamarkaði. Ég hef ítrekað talað fyrir því í ræðum að þetta mál verði skoðað heildstætt og að í framhaldinu verði lagfært það sem raunverulega þarf að lagfæra. Þess vegna fagna ég því sérstaklega að þessi nefnd verði sett á laggirnar, en um leið finnst mér miður að þau álitamál sem eru í þessu máli verði sett inn í þrjár nefndir. Það gæti skapað eitthvert misvægi og ósamræmi sem við sjáum ekki fyrir.

Ég fagna þessu ákvæði sérstaklega og (Forseti hringir.) þakka meiri hluta hv. viðskiptanefndar fyrir að hafa tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem hér hafa komið fram í ræðum, m.a. hjá mér.