fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég gleðst einnig yfir að horfa á töfluna og sjá að allir þingmenn eru sammála því að þetta frumvarp sé gott og til bóta og eru að samþykkja það. Ég vil sérstaklega í lokin þakka formanni og varaformanni viðskiptanefndar, hv. þingmönnum Lilju Mósesdóttur og Magnúsi Orra Schram, fyrir það hvernig þau tóku á þeim ágreiningsmálum sem komu upp í nefndinni og tóku tillit til þeirra athugasemda sem komu fram við 1., 2. og 3. umr. Það sjáum við á því að ég dró til baka breytingartillögur sem ég hafði lagt fram við 2. umr. því að ég tel að tillögur meiri hlutans, sem ég skrifa undir með fyrirvara, komi mjög vel til móts við þær breytingartillögur sem ég lagði fram.
Ég hlakka til að sjá niðurstöðurnar frá þessari nefnd. Það er mjög mikilvægt að hún taki til starfa sem allra, allra fyrst þannig að við förum að fá svör (Forseti hringir.) við þeim spurningum sem nefndinni er ætlað að svara.