138. löggjafarþing — 138. fundur,  12. júní 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[11:01]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Eftir því hefur verið tekið að umræða um þetta mál hefur verið málefnaleg og góð og atkvæðaskýringar sömuleiðis nokkurn veginn án undantekninga, þó að einn og einn bardagamaður hafi komið með gömul slagorð sem kannski standast ekki skoðun. Það er aukaatriði, virðulegi forseti. Aðalatriðið er að þetta hænuskref er komið. Það veitir hins vegar falskt öryggi ef menn trúa því að það sé nóg. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að beita sér fyrir því að við ljúkum þessu verki. Það er ekki hægt að gera það á næstu árum, það er grundvallarmisskilningur, við þurfum að gera það á næstu mánuðum eða vikum.

Við segjum já við þessu og fögnum þessa litla hænuskrefi en vörum við því að menn telji að hér sé nóg að gert. Því fer víðs fjarri.