138. löggjafarþing — 138. fundur,  12. júní 2010.

stjórnlagaþing.

152. mál
[11:19]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Eins og fram hefur komið höfum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins lagst gegn hugmyndinni um stjórnlagaþing á þeirri forsendu að samkvæmt núgildandi stjórnarskrá og stjórnskipun landsins er Alþingi stjórnarskrárgjafinn og stjórnlagaþing er ekki í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar. Það er ekki óheimilt með núverandi stjórnarskrá að setja á fót ráðgefandi stjórnlagaþing með þeim hætti sem hér er lagt til en það er ekki í samræmi við hlutverk handhafa ríkisvaldsins að það sé gert með þessum hætti. Við teljum að málið hafi lagast með breytingartillögum sem fram hafa komið nú á síðari stigum frá hv. allsherjarnefnd. Málið hefur lagast með tilkomu nefndar valinkunnra manna sem gert er ráð fyrir að undirbúi málið og þjóðfundi, en við sjálfstæðismenn erum enn þeirrar skoðunar að stjórnlagaþingið sem slíkt sé fullkominn óþarfi.