138. löggjafarþing — 138. fundur,  12. júní 2010.

iðnaðarmálagjald.

661. mál
[14:38]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Mér er minnisstætt í gegnum tíðina á Alþingi að mörgum þingmönnum hefur orðið tíðrætt um mannréttindi og mannréttindabrot. Það eru sérstaklega þingmenn eins og hv. þm. Atli Gíslason og hv. þm. Þuríður Backman. Ég minnist þess sérstaklega þegar við ræddum um kvótadóminn frá Hæstarétti og öryrkjadóminn sömuleiðis frá Hæstarétti sem fjallaði einmitt um að lög brytu mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Þá voru margir hv. þingmenn mjög uppteknir af því, með réttu frú forseti, vegna þess að mér finnst að þingmenn eigi að standa vörð um mannréttindi.

Svo horfi ég yfir salinn, frú forseti, og það er enginn stjórnarliði í salnum, enginn. Ekki þeir tveir hv. þingmenn sem ég nefndi áðan á nafn og ekki aðrir stjórnarliðar og enginn ráðherra er viðstaddur umræðuna, ekki einu sinni flutningsmaður málsins. Ég verð að gera athugasemd við það, frú forseti, og óska eftir því að flutningsmaður sé viðstaddur umræðu um hans eigið mál.

(Forseti (RR): Forseti mun gera ráðstafanir til að koma þeim skilaboðum áleiðis til hæstv. iðnaðarráðherra.)

Þakka fyrir. Ég mun halda áfram máli mínu þó að ég ætti náttúrlega að bíða því að þetta er algjör móðgun við Alþingi.

Frumvarpið sem við ræðum hér er leiðrétt mannréttindi, þetta eru hálf mannréttindi. Menn ganga ekki til verks eins og ætti að gera. Segja ætti að þeir sem óska geti fengið iðnaðarmálagjaldið endurgreitt, vegna þess að það voru mannréttindabrot að innheimta það með þessum hætti, og að lögin verði strax tekin úr gildi þar sem þau fela í sér mannréttindabrot. Síðan yrðu Samtök iðnaðarins að sjá um hvernig þeir ná í félagsgjöld fyrir árið.

Nei, menn ganga þá leið að mynda sjóð sem á að renna til fræðslustarfs hjá iðnaðinum væntanlega og mjög líklega og nánast örugglega til Samtaka iðnaðarins. Þetta finnst mér mjög undarlegt. Ég vil að hv. nefnd sem fær þetta mál til afgreiðslu verði mjög áfram um að skoða afturvirkni mannréttindabrota og hvort það sé í lagi að láta mannréttindin taka gildi við þarnæstu álagningu.

Það er líka athyglisvert að það stendur í lögunum um iðnaðarmálagjald sem í gildi eru í dag að tekjur af iðnaðarmálagjaldi renni til Samtaka iðnaðarins. Tekjunum skal varið til eflingar iðnaðar og iðnþróunar í landinu o.s.frv.

Svo les maður stjórnarskrána, frú forseti, og þar stendur í 41. gr.:

„Ekkert gjald má greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.“

Hér eru einföld lög sem skylda ríkissjóð til að greiða þetta gjald. Fjárlögin verða að taka tillit til þess. Það er búið að ráðstafa ákveðnum gjöldum fyrir hönd ríkissjóðs fram í tímann. Þetta finnst mér alveg ótækt, frú forseti, af því að stjórnarskráin kveður mjög ákveðið á um að fjalla skuli um þetta í fjáraukalögum og fjárlögum.

Fyrir utan það að í 40. gr. stendur:

„Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum.“

Það má segja að þetta gjald uppfylli það. Gjaldið er 0,08% á öll iðnfyrirtæki þannig að þetta er í rauninni skattur. Þess vegna finnst mér það mjög athyglisvert að honum er um leið ráðstafað úr ríkissjóði.

Ég á eftir að tala um ASÍ, SA og sjúkrasjóðina og lífeyrissjóðina og stjórnir þessara aðila og sérstaklega hvernig þau hafa komið út úr hruninu. Allt tengist þetta saman, frú forseti, og ég bið um að verða settur aftur á mælendaskrá.