138. löggjafarþing — 138. fundur,  12. júní 2010.

iðnaðarmálagjald.

661. mál
[14:43]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér merkt mál sem er afnám iðnaðarmálagjalds. Þetta gjald hefur verið 0,08% af veltu iðnfyrirtækja. Það virkar nákvæmlega eins og veltuskattur, eins og aðstöðugjaldið í gamla daga. Þetta er mun illkynjaðra álag en hefðbundinn skattur sem borgaður er yfirleitt af hagnaði og eykur kostnað iðnfyrirtækja. Þess vegna fagna ég mjög að þessum veltuskatti skuli vera komið fyrir kattarnef.

Í máli ræðumanna hefur komið fram að það sé óeðlilegt að þrátt fyrir dóma eigi að innheimta skattinn, eða þetta iðnaðarmálagjald, fyrir árið 2009. Það er miður því það liggur fyrir að gjaldið er brot á mannréttindum eins og ESA hefur kveðið upp úr um. Það væri meiri reisn yfir því ef gjaldið yrði afnumið alfarið. Það mundi henta iðnfyrirtækjum sem núna þurfa að greiða þetta gjald sérstaklega vel að gjaldið yrði tekið af núna. Rekstur fyrirtækja er erfiður núna í hruninu. Mörg fyrirtæki eru orðin svo skuldsett að reksturinn stendur ekki undir efnahagsreikningnum. Þessi 0,08% af veltu væru kærkomin búbót til að fyrirtæki ættu sér meiri lífsvon í framtíðinni.

Þrátt fyrir þennan annmarka er það ákaflega gleðilegt að gjaldið skuli vera afnumið núna. Eins og ég segi er varla hægt að finna betri tíma. Allir þurfa á öllum þeim peningum sem þeir geta náð í að halda akkúrat núna vegna árferðisins. Ekki eingöngu vegna þess að efnahagsreikningur fyrirtækjanna er illa útleikinn, heldur einnig vegna þess að eftirspurn hefur dregist mjög saman í íslensku hagkerfi. Þau iðnfyrirtæki sem eingöngu starfa á innanlandsmarkaði hafa fundið fyrir minnkandi eftirspurn vegna hrunsins. Raunlaun og ráðstöfunartekjur hafa lækkað vegna skattlagningar á heimili (PHB: Og á laun … atvinnu.) og, eins og hv. þm. Pétur Blöndal bendir á, hækkaði tryggingagjaldið umtalsvert í fyrra.

Allt hnígur þetta í sömu áttina, þ.e. rökin fyrir því að þetta gjald verði ekki innheimt fyrir síðasta ár, heldur látið niður falla. Þetta mun eflaust koma til skoðunar í nefndinni þegar hún fjallar um málið. Það er hægur vandi að koma með breytingartillögu þar sem gjaldið verður látið falla niður og árið 2009 komi ekki til álagningar. Ég hef talið hér upp góð rök fyrir því, bæði er efnahagur bágur hjá þessum fyrirtækjum og eftirspurn hefur dregist mjög saman sem hefur leitt til þess að reksturinn stendur ekki jafn vel og ella.

Annað mál sem mig langaði til þess að tala um í þessu sambandi er mannréttindavinkillinn. Ég hef alla tíð, alla vega síðan ég komst til vits og ára, verið þeirrar skoðunar að öll félagsaðild eigi að vera frjáls. Menn kjósa sér þann félagsskap sem þeir vilja vera í og greiða aðgöngugjald sem félagsskapurinn krefst. Undantekning frá þessu er náttúrlega fjármögnun sameiginlegra sjóða ríkisins í gegnum skattheimtu. Það er sérstaklega ógnvænlegt, og um það snýst þessi dómur, að það skuli vera hægt að þvinga menn til þess að greiða gjald í félag sem þeir vilja ekki vera í.

Við vitum að Samtök iðnaðarins hafa verið mjög öflugur talsmaður þess að ganga í Evrópusambandið og hafa barist fyrir því. Nú er vel hugsanlegt að einhver aðildarfélög séu algjörlega mótfallin því að ganga í Evrópusambandið. Í hefðbundnum félagsskap mundi maður bara ganga út og hætta að borga félagsgjöld en því er ekki að heilsa með Samtök iðnaðarins. Þar er barist fyrir þessu máli.

Ég ætla ekki að gera lítið úr skoðunum þess fólks sem vill ganga í Evrópusambandið. Það skýtur hins vegar skökku við að neyða einhvern með lögum til þess að borga félagsgjöld í félagsskap sem berst fyrir einhverju sem menn eru á móti og sannfærðir um að komi þeim og þjóðinni ekki vel. Það er náttúrlega mannréttindabrot í sjálfu sér að (PHB: Skoðanakúgun.) kúga fólk til að fjármagna slíka hluti. Eins og hv. þm. Pétur Blöndal bendir hér á í frammíkalli getur þetta verið skoðanakúgun.

Við sjáum þetta reyndar á fleiri stöðum. Við sjáum þetta hjá hinu opinbera. Þar eru reyndar aðilar við stjórnvölinn sem kúga þegnana til að greiða í gegnum hið almenna skattkerfi fyrir eitthvað sem er algjörlega á móti sannfæringu þeirra. Við sjáum t.d. að núna er í gangi umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu sem talið er að muni kosta okkur allt að 7 milljarða. Á sama tíma tala einhverjir um að frysta þurfi laun opinberra starfsmanna. Á sama tíma er verið að skera niður þjónustu við þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Á sama tíma er verið að ýta þörfum framkvæmdum eins og t.d. samgönguframkvæmdum úti um landið út af borðinu. Á sama tíma gætum við sett þessa peninga í atvinnuuppbyggingu, breikkað skattstofna og annað slíkt. En það er annað mál.

Það er eðlilegt að fólk geti ekki sagt sig úr lögum við samfélagið, nema einfaldlega með því að flytja úr landi. Þess vegna er þetta kannski réttlætanlegt, þótt það sé óráðlegt. Það er annað mál. Því miður eða kannski sem betur fer getur maður ekki orðið skógarmaður í dag og sagt sig úr lögum við samfélagið. Þannig að þetta er niðurstaðan.

Það er gleðileg framför að fyrirtækin séu ekki lengur þvinguð til þess að taka þátt í einhverju sem þau hafa ekki áhuga á. Það er öllum mönnum auðsætt að einhverjir muni sjá hagsmunum sínum vel borgið innan Samtaka iðnaðarins þótt iðnaðarmálagjaldið hverfi. Margir eru tilbúnir að borga þau félagsgjöld sem þarf til þess að reka hagsmunagæslu innan félaga eins og þessara. En það sem mér fellur sérstaklega vel í geð er að þeir sem hafa ekki áhuga á því að fjármagna þann boðskap og þá starfsemi sem þar er geti sagt sig úr félagsskapnum. Það er sérstaklega gleðilegt.

Menn eru neyddir í svipaða stöðu á fleiri stöðum í þjóðfélaginu. Mér skilst að búnaðargjald lúti sömu lögmálum. Ég ætla nú ekki að gera það að sérstöku umtalsefni mínu, heldur einbeita mér að því að tala um iðnaðarmálagjaldið.

Að iðnfyrirtækin sleppi við þennan veltuskatt, þ.e. 0,08% af veltu, getur hugsanlega orðið til þess að meira verði fjárfest. Það getur orðið til þess að fyrirtækin taki fyrr við sér en ella. Þó að þetta sé lág prósenta hjálpast allt að þegar staðan er eins og hún er í þjóðfélaginu. Þess vegna er þetta sérstaklega gleðilegt.

Ég beini því sérstaklega til nefndarinnar að hún hugi að því að gjaldið verði alfarið afnumið með þessum lögum og komi ekki til álagningar gjaldsins vegna veltu ársins 2009.