iðnaðarmálagjald.
Frú forseti. Það er sjaldan að ég gleymi skattalegu hliðunum á málum. Það gerðist núna því ég var svo upptekinn af mannréttindahliðinni. Það er rétt hjá hv. þingmanni, þetta hefur heilmikil áhrif sem veltuskattur. Hann kom líka inn á það að í 73. gr. stjórnarskrárinnar segir að allir séu frjálsir skoðana sinna og sannfæringar en þetta gjald vinnur gegn því. Það eru fleiri gjöld sem vinna gegn sannfæringu manna í öfuga átt, frú forseti. Búnaðargjaldið skyldar alla bændur til þess að greiða til Bændasamtaka Íslands.
Nú kann svo að vera, þó að mér þyki það ólíklegt, að einhver bóndi sé hlynntur því að ganga í Evrópusambandið. Það er ekki hægt að útiloka það, frú forseti. Mér finnst frekar ólíklegt að einhver bóndi vilji ganga í Evrópusambandið. En gefum okkur að einhver bóndi vilji endilega ganga í Evrópusambandið. Þá þarf hann að hlusta á það að Bændasamtökin álykti gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu, þessi eini bóndi sem hugsanlega vill ganga í Evrópusambandið. Ég vildi benda á að þetta getur líka verið öfugt. Hann þarf að fjármagna áróður gegn eigin sannfæringu. Þetta er ekki síður athyglisvert. Ég tek það fram að mér þykir það frekar ólíklegt að einhver vilji ganga í Evrópusambandið.