138. löggjafarþing — 139. fundur,  14. júní 2010.

afgreiðsla mála fyrir þinghlé.

[12:07]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Fyrir það fyrsta geri ég ekki athugasemd við fundarstjórn forseta á þessum fundi en kalla þó eftir því að formenn þingflokka og/eða formenn stjórnmálaflokkanna sem hér eiga sæti setjist saman og semji um þinglokin og taki þá samtalið sem hv. þm. Bjarni Benediktsson hóf hér í ræðustól á sameiginlegum fundi þessa fólks. Til þess erum við hér og ef samningsviljinn liggur fyrir semjum við um þinglok.