138. löggjafarþing — 139. fundur,  14. júní 2010.

afgreiðsla mála fyrir þinghlé.

[12:11]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna eru marklausar þar til hæstaréttardómur sá sem allir bíða eftir hefur fallið. Úrslita má vænta úr þeim dómi annaðhvort á miðvikudag eða mánudaginn í næstu viku. Það er staðfest vegna réttarhlés Hæstaréttar. Það er makalaust að þingið sé sent heim á meðan þessi mál eru óleyst í Hæstarétti. Ég treysti persónulega ekki þeirri ríkisstjórn sem nú situr að setja bráðabirgðalög eftir að Hæstiréttur hefur komist að niðurstöðu. Ég legg því til að þingið verði sent heim samkvæmt dagskrá og það verði kallað saman þegar niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir þannig að allir 63 þingmenn sem eiga setu á Alþingi komi að þeim málum. Það eru mjög miklar líkur á því að þegar dómur Hæstaréttar fellur falli á ríkið himinhá skaðabótakrafa vegna þess að það er ekki hægt (Forseti hringir.) að gera ólöglegan hlut löglegan með nýrri lagasetningu.