138. löggjafarþing — 139. fundur,  14. júní 2010.

afgreiðsla mála fyrir þinghlé.

[12:18]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem upp vegna orða hv. þm. Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur til að fyrirbyggja allan misskilning um að við sjálfstæðismenn séum, með orðum okkar um að vanda skuli til verka, að gera á nokkurn hátt lítið úr störfum nefndanna sem hafa verið að fjalla um skuldavandamálin. Það sem við erum að benda á er að þetta verk hefur verið unnið í afar góðri sátt. Ég leyfi mér að fullyrða það að allir þingmenn sem hér sitja eru staðráðnir í því að leggja sig alla fram við að leysa þessi mál með sem bestum hætti og í sem mestri sátt. Við sjálfstæðismenn höfum átt stóran þátt í því að koma með tillögur til að bæta úr þessum málum, hins vegar er það sjónarmið okkar að við séum ekki komin út á enda í þessu máli. Við þurfum að vanda til verka vegna þess að þetta eru mál sem snerta heimilin í landinu og afdrif fjölskyldna í landinu. (Forseti hringir.) Þess vegna hvetjum við til vandaðra vinnubragða. Við hvetjum til þess að þingið gefi (Forseti hringir.) sér þann tíma sem þarf til að ljúka þessum málum þannig að okkur sé öllum sómi að.