138. löggjafarþing — 140. fundur,  14. júní 2010.

óeðlileg undirboð í vegagerð og byggingariðnaði.

408. mál
[12:50]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina sem er vissulega um mál sem er alvarlegt og snertir marga. Í upphafi er þó rétt að gera grein fyrir því að löggjöf er varðar opinber útboð fellur formlega undir fjármálaráðherra en málið er mér vitaskuld einnig skylt sem efnahags- og viðskiptaráðherra.

Leitað var upplýsinga hjá Samkeppniseftirlitinu til að svara fyrirspurninni og fengust þær upplýsingar að Samkeppniseftirlitið hefur ekki haft til rannsóknar mál sem beinast að ætluðum undirboðum í vegagerð og byggingariðnaði. Þá hafi engum erindum verið beint til eftirlitsins hvað þetta varðar. Mál af þessu tagi geta hins vegar komið upp í tengslum við opinber útboð.

Af þeim sökum gaf Samkeppniseftirlitið þann 23. desember sl. út álit nr. 4/2009, opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir, þar sem þeim tilmælum var beint til opinberra aðila að fylgjast með því að við framkvæmd útboða væri farið að samkeppnislögum. Í álitinu er m.a. fjallað um möguleikann á því að markaðsráðandi fyrirtæki misbeiti stöðu sinni í útboðum, t.d. með skaðlegri undirverðlagningu. Þá eru rakin dæmi frá fyrri tíð um misnotkun á markaðsráðandi stöðu við útboð. Með álitinu fylgir sérstakur gátlisti sem ætlað er að auðvelda opinberum aðilum að greina ólögmætar samkeppnishindranir í tengslum við útboð á opinberum innkaupum á vöru, þjónustu og verklegum framkvæmdum og þar á meðal þeim viðskiptum sem hv. þm. Birkir Jón Jónsson gerir hér sérstaklega að umtalsefni. Gátlistinn miðast fyrst og fremst við að greina og bregðast við hugsanlegu ólögmætu samráði tilboðsgjafa.

Við þetta er því að bæta um bakgrunn þessarar umræðu almennt, sem er bæði þörf og mikilvæg, að vitaskuld hefur eftirspurn eftir þjónustu aðila í þessum geira, vegagerð og byggingariðnaði eða mannvirkjagerð almennt, dregist mjög mikið saman á allra síðustu árum. Þess má geta að fjárfestingar á Íslandi eru nú vel innan við helming þess sem þau voru þegar mest var á árunum 2005–2007. Við þær kringumstæður er ekki að undra þótt seljendur þessarar þjónustu, hvort sem það eru fyrirtækin sjálf eða starfsmenn sem selt hafa starfskrafta sína í þessa starfsemi, eigi mjög á brattann að sækja. Hins vegar eru kaupendur væntanlega í betri stöðu en að minnsta kosti á undanförnum árum, hafi þeir á annað borð fjármagn til að kaupa hvort heldur er tilbúin mannvirki eða kaupa þjónustu þeirra sem taka að sér að reisa mannvirki.

Við aðstæður sem þessar, þegar afkastageta í greininni er miklu meiri en þarf til þess að anna eftirspurn, er vitaskuld ekki við öðru að búast en að verð sé almennt lágt. Raunar má halda því fram með tiltölulega einföldum hagfræðirökum, sem ég veit að hv. fyrirspyrjandi þekkir vel enda vel menntaður í þeim fræðum, að þegar afkastagetan er miklu meiri en þörf er á geti verð nálgast það sem kallað er breytilegur kostnaður. Það er þá efniskostnaður en einnig annar tilfallandi kostnaður en hann nægir ekki til að borga ýmsan fastan kostnað sem fyrirtæki verða þó vitaskuld að fá eitthvað upp í þegar til lengdar lætur.

Við aðstæður sem þessar er við því að búast að rekstur fyrirtækja sé almennt mjög erfiður og tekjur dugi varla fyrir breytilegum kostnaði, sem er vitaskuld miklu minna en þarf til þess að fyrirtæki geti haldið áfram starfsemi til lengdar. Það þarf því ekki að vera um óeðlileg undirboð að ræða í þeim skilningi að fyrirtæki geri tilboð sem eru óhagstæð fyrir þau en vissulega er afar óþægilegt fyrir fyrirtækin að vera í þannig stöðu.

Það er erfitt að sjá nákvæmlega hvernig hið opinbera getur leyst þennan vanda með því að breyta útboðsreglum sínum. Það er t.d. erfitt að sjá að reglur um lágmarksverð leysi vandann allan en vitaskuld má skoða þær leiðir eins og ýmsar aðrar.