138. löggjafarþing — 141. fundur,  14. júní 2010.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:03]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Traust á Alþingi, á þingstörfunum, hefur verið í lágmarki undanfarin missiri. Það er grafalvarlegt mál því að Alþingi er bæði elsta og æðsta valdastofnun landsins. Þingið fer ekki einungis með lagasetningar og fjárstjórnarvaldið heldur hefur það einnig eftirlit með störfum ríkisstjórnarinnar og veitir henni aðhald.

Ég hygg að allir þingmenn hafi spurt sig: Hvernig má endurheimta traust Alþingis? Hvernig endurheimtum við traust á störfum þingsins? Við sem hér störfum, hvar í flokki sem við stöndum, tökum skilaboð um lítið traust á þinginu til okkar og viljum allt til þess vinna að endurheimta virðingu þess.

Góðir landsmenn. Enda þótt traust á þinginu hafi áður sveiflast til og frá var ekki við öðru að búast en að traust á þeim sem stjórna landinu mundi hrapa í kjölfar bankahrunsins. Svo fór að ný ríkisstjórn var mynduð sem síðar fékk meiri hluta í þingkosningunum sem fram fóru á síðasta ári. En þrátt fyrir ríkisstjórnarskiptin, öll fögru loforðin um breyttar áherslur, nýja tíma gegnsæis, öll slagorðin um skjaldborg heimilanna, norræna velferð, vinstra vor og velferðarbrú er staðan enn óbreytt hvað vantraustið á þinginu varðar. Traust á Alþingi er í lágmarki og það er erfitt að verjast þeirri hugsun að verkleysið og loforðasvik hafi ekki annað gert en að auka á vantraust í garð Alþingis og stjórnmálanna almennt. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hefur hvorki burði né getu til þess að leysa þau verkefni sem við henni blasa innan þings og utan. Helstu fórnarlömb þess stjórnleysis eru heimilin í landinu sem þjást vegna innanmeina og ágreinings innan ríkisstjórnarinnar. Þetta blasir við öllum Íslendingum.

Góðir landsmenn. Stjórnmálaumræða dagsins í dag er í raun stórmerkileg því að það virðist allt vera til skoðunar og endurmats. Þeir sem lengst ganga kalla eftir nýju lýðveldi og sumir taka þá umræðu jafnvel alvarlega. Stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá, segja aðrir. Það þarf fleiri afsagnir, fleiri afsökunarbeiðnir, nýja flokka, ráðherrana af þingi. Fyrnum aflaheimildirnar, segir í stjórnarsáttmálanum. Göngum í Evrópusambandið, segir Samfylkingin og Vinstri grænir taka undir. Borgum Icesave-kröfurnar, segir ríkisstjórnin en þjóðin hafði ríkisstjórnina undir í því máli. Þrátt fyrir skýr skilaboð frá þjóðinni í þjóðaratkvæðagreiðslunni er sem ríkisstjórnarflokkarnir, sem á tyllidögum segjast vilja fylgja vilja fólksins í landinu, vilji ekki horfast í augu við það hver vilji fólksins í landinu er í því máli.

Góðir landsmenn. Þetta eru miklir umbrotatímar, tímar sem reyna mjög á fjölskyldurnar og fyrirtækin en ekki síður á innviðina í samfélaginu, á þingið, á dómstólana og á stjórnsýsluna í landinu. Við gerum í senn upp við hið liðna og byggjum stoðir og undirstöður fyrir framtíðina. Að gera þetta tvennt í senn er afar vandasamt verk. Öllu skiptir að sýna fólkinu í landinu að við höfum tök á verkefninu og að við glímum við tímabundið ástand, að betri tímar eru fram undan ef allir taka saman og leggjast á eitt. Til þess að virkja samtakamátt þjóðarinnar þurfa stjórnvöld hins vegar að greiða götu þeirra sem vilja skapa verðmæti og eru tilbúnir að leggja á sig. Á fundum mínum að undanförnu hringinn í kringum landið finn ég að fólk er tilbúið til að leggja mikið á sig. Fólk er tilbúið til þess að taka þátt en því finnst sem ríkisstjórnin sé í sífellu að þvælast fyrir.

Góðir landsmenn. Við vitum öll að það er engin einföld leið. Það er engin skemmri skírn til til lausnar á þeim vanda sem við okkur blasir en það er við aðstæður sem þessar sem öllu skiptir að greina á milli áríðandi mála og annarra mála sem eru mikilvæg en þarfnast ekki tafarlausra úrbóta. Af verkum ríkisstjórnarinnar er ljóst að hún skilur ekki hvar mörkin þarna á milli liggja. Það er t.d. áríðandi að taka á greiðsluvanda heimilanna, það getur ekki beðið lengur. Forsætisráðherra segist hafa innleitt 50 aðgerðir en það er ekki fjöldi aðgerðanna sem hér telur, það er að hve miklu gagni aðgerðirnar hafa komið. Það þarf að vera eitthvað hald í úrræðunum. Nýleg skýrsla Seðlabankans sýnir að vandi heimilanna fer enn vaxandi.

Það er jafnframt áríðandi að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum. Þar má hvergi gefa eftir því að það er okkar að taka á þeim vanda, honum má alls ekki velta yfir á framtíðarkynslóðir. Leið ríkisstjórnarinnar að hækka skatta stórlega og auka við álögur gerir vonda stöðu enn verri. Það er jafnframt um niðurskurðarmálin að segja að það er fyrirséð að lítil sátt verður um niðurskurð í rekstri ríkisins og margir munu verða fyrir miklum vonbrigðum. En öllu skiptir að í ríkisfjármálum verði raunsæi og ábyrgð tekin fram yfir vinsældir og stundarhagsmuni. Þannig vinnubrögð munum við í Sjálfstæðisflokknum styðja.

Og enn um það sem er áríðandi. Það er áríðandi að örva hagvöxt, bæta rekstrarskilyrði atvinnustarfseminnar, afnema gjaldeyrishöftin, laða að fjárfesta, lækka vexti, skapa ný störf. Þetta eru áríðandi verkefni og verkefni sem verður að sinna af miklum þrótti. Ríkisstjórninni tókst á einungis hálfu ári að spilla fyrir stöðugleikasáttmálanum, að halda þannig á málum að það samkomulag sem var við aðila vinnumarkaðarins er ekki lengur til staðar. Fyrst og fremst er það vegna aðgerðaleysis og óraunhæfra hugmynda um fyrningu aflaheimilda. Og enda þótt lög um stjórn fiskveiða séu dæmi um mikilvægt mál er það sem betur fer að renna upp fyrir stjórnarliðum að það er ekki áríðandi að fyrna aflaheimildir, þvert á móti er áríðandi að slíkum hugmyndum verði varpað fyrir róða. Fyrningarleiðin á ekkert annað skilið en að verða brottkasti að bráð.

Frú forseti. Ég hef hér rakið nokkur áríðandi mál sem fólkið í landinu horfir til þingsins með lausnir á. Til hliðar við þessi áríðandi mál eru auðvitað fjölmörg mikilvæg mál, mál sem þarf að sinna en hafa engu að síður tekið of mikinn tíma í þingstörfunum, dýrmætan tíma frá lausn á greiðsluvanda heimilanna og frá atvinnumálum. Barátta ríkisstjórnarinnar frá því fyrir ári síðan fyrir nýrri stjórnarskrá er dæmi um slíkt mál. Engum dylst að endurskoða þarf stjórnarskrána og það viljum við í Sjálfstæðisflokknum að verði gert. En hver getur haldið því fram með einhverjum rökum að það hafi verið stjórnarskráin sem brást? Að tafir á endurskoðun stjórnarskrárinnar séu helstu vandamál heimilanna, að það séu brestir í stjórnlögunum sem eru að sliga heimilin? Hverjum dettur slíkt í hug? Stjórnlög á að endurskoða af yfirvegun og þótt okkur hafi ekki auðnast að skapa sátt um breytingar á stjórnarskránni, einstökum köflum hennar, verður ekki sagt að það hafi valdið okkur neinum búsifjum.

Hugmyndin um stjórnlagaþing hefur kútvelst hér um í þinginu og svo fast er haldið í hugtakið að ráðgefandi samkomu sem enga stjórnarskrárlega stöðu hefur, enga stjórnskipulega stöðu, hvað þá minnstu valdheimildir, á að kalla saman undir því stóra heiti stjórnlagaþing. Það er mikið rangnefni. Við sjálfstæðismenn viljum að ríkt samráð verði haft við þjóðina um endurskoðun stjórnarskrárinnar og höfum lagt okkar af mörkum hér í þinginu til að tryggja nauðsynlega aðkomu þjóðarinnar að því máli, t.d. með því að halda þjóðfund, þjóðfundarfyrirkomulagið er heppilegt, vel heppnuð leið sem nýlega var látið reyna á til að kalla eftir sjónarmiðum frá þjóðinni. Það virðist vera að takast sátt á þinginu um að skipa nefnd sem hafi það hlutverk að semja frumvarp og skapa framhaldi málsins eðlilega og nauðsynlega umgjörð. Það er til bóta, að sjálfsögðu, en það breytir ekki hinu að Alþingi er stjórnlagaþingið. Það er Alþingi sem samkvæmt lögum gerir breytingar á stjórnarskránni.

Hér er á þinginu er annað mál, vatnalög, sem hefur fengið vaxandi athygli en er ekki áríðandi þótt mikilvægt sé. Vatnalögin eru fyrst og fremst dæmi um mál sem sýnir að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur má ekki missa af einu einasta tækifæri til að efna til ágreinings. Gildistöku vatnalaganna á einfaldlega að fresta eins og nefnd undir forustu Samfylkingarinnar lagði til.

Síðast en ekki síst eru lýðræðisumbætur mikilvægt mál. Kröfunni um beinna lýðræði verður ekki mætt með því einu að varpa fram hugmynd um persónukjör í sveitarstjórnarmálum sem tilraun. Það var skot sem fór langt yfir markið hjá forsætisráðherra og lengst af í þeim leik var reyndar sem svo að forsætisráðherra væri ekki í sama liði og margir stjórnarliðar. Fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslna og þróun kosningalöggjafar er verkefni sem þarf að vera í traustum farvegi og vinna þvert á flokkslínur. Enginn má efast um vilja Sjálfstæðisflokksins til að halda þeirri umræðu áfram og þróa hugmyndir um beina aðkomu landsmanna að endanlegri ákvörðun í stórum málum.

Góðir landsmenn. Það er með því að sinna áríðandi málum og hafa traust tök á mikilvægum málum, sem ekki þarfnast þó tafarlausra úrbóta en við erum öll sammála um að vinna þarf að, sem við Íslendingar finnum fjölina okkar aftur. Við höfum allt sem þarf og meira til. Við erum fámenn en afskaplega lánsöm þjóð. Við höfum miklar auðlindir, mikinn mannauð, sterka innviði. Möguleikar okkar í framtíðinni eru ótakmarkaðir.

Góðir landsmenn. Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars um leið og ég sendi bændum undir Eyjafjöllum baráttukveðjur með von um að náttúruöflin snúist á sveif með þeim í öllum þeirra störfum í framtíðinni. — Lifið heil.