138. löggjafarþing — 141. fundur,  14. júní 2010.

almennar stjórnmálaumræður.

[22:12]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Fyrir ári trúði ég að óheftur kapítalismi væri hruninn líkt og kommúnisminn í lok síðustu aldar, að Íslendingar hefðu gert sér grein fyrir að sýnin um að sífellt væri hægt að stækka kökuna með því að ýta undir græðgi einstaklinganna væri draumsýn, fals eitt þar sem engin raunveruleg verðmæti voru sköpuð. Nú þyrfti að svara kalli þjóðarinnar um nýtt Ísland sem byggðist á samvinnu, samstöðu og sanngirni. Ári seinna horfi ég í kringum mig og því miður sýnist mér hið nýja Ísland aðeins vera hið gamla endurfætt.

Helstu innanmein ríkisstjórnarinnar virðast vera smákóngaslagur um stóla og embætti, og bitlingapólitíkin lifir góðu lífi á meðan íslensk heimili eru enn í herkví banka og fjármagnseigenda sem virðast hafa einsett sér að rýja þau inn að skinni. Enn standa stjórn og stjórnarandstaða grá fyrir járnum í skotgröfunum.

Sveitarstjórnarkosningarnar voru harkaleg áminning fyrir okkur öll sem sitjum á Alþingi um að við höfum ekki staðið okkur. Stjórnmál eiga að snúast um hugmyndafræði og stærsta sigurinn vann flokkur sem byggir sína hugmyndafræði á því einu að vera skemmtilegur. Hvað segir það okkur um þá hugmyndafræði sem aðrir flokkar byggja stefnu sína á?

Það er nefnilega svo merkilegt að eftir hrun hefur umræðan um hugmyndafræði í stjórnmálum varla náð inn í sali Alþingis. Einmitt nú þegar við ættum að vera að móta nýtt Ísland á grunni nýrrar hugsunar og nýrrar framtíðarsýnar virðist allt snúast um að koma gamla Íslandi í gang á ný. Getur verið að stjórnvöld séu svo upptekin af því að stoppa í göt og sparsla í sprungur að þau treysti sér ekki til að skoða heildarmyndina?

Við þurfum hugmyndafræði og hugsjónir í íslensk stjórnmál. Við þurfum einstaklinga sem eru ekki hræddir við að berjast fyrir þessum hugsjónum. Við þurfum hugmyndafræði sem byggir á raunverulegri verðmætasköpun þar sem fólk leggur saman þekkingu sína, reynslu og hagsmuni til að ná ákveðnum sameiginlegum markmiðum. Við verðum að móta nýtt samfélag, samfélag sem er réttlátt og heilbrigt, samfélag sem byggist á sanngirni, samvinnu og samstöðu — samfélag þar sem manngildi er sett ofar auðgildi.

Við verðum að endurreisa grunngildi samvinnunnar á Íslandi, samvinnu, sjálfshjálp, sjálfsábyrgð, lýðræði, jafnrétti, sanngirni og samstöðu. Samvinnustefnan byggir á því að fólk nái meiri árangri með því að vinna saman en sem einstaklingar og að eina leiðin til að tryggja sanngirni í samfélaginu sé valddreifing án tillits til auðs, stéttar, kyns eða hörundslitar — þar sem manngildið er sett ofar auðgildi.

Við framsóknarmenn höfum reynt að vinna eftir þessum gildum síðustu missirin. Skilyrði fyrir stuðningi við minnihlutastjórn VG og Samfylkingar var að kosið yrði til stjórnlagaþings. Það vildum við gera í fyrrahaust. Við höfum barist fyrir því að þjóðin fengi í auknum mæli að segja skoðun sína milliliðalaust í gegnum þjóðaratkvæði sem hún gerði svo sannarlega í kosningunum um Icesave. Þá höfum við sett fram tillögur um þjóðarsátt með samvinnuráði sem í sætu fulltrúar stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins. Þá hafa tillögur okkar að lausn á vanda heimilanna byggst á jafnræði og samábyrgð. Við höfum lagt til þak á verðtryggingu og afnám hennar í kjölfarið, en þannig bera lántakendur og lánveitendur jafnari ábyrgð á því að halda verðbólgu í skefjum. Hugmyndir okkar um afskriftir á höfuðstól lána byggja einnig á jafnræði því að öll höfum við orðið illa úti af völdum gengishruns og verðtryggingar. Þannig berjumst við framsóknarmenn fyrir hugsjónum okkar um samvinnu — þar sem manngildið er sett ofar auðgildi.

Þannig viljum við framsóknarmenn sýna fram á að hugmyndafræði okkar er ekki orðin tóm heldur höfum við skýra sýn á það hvernig við viljum hrinda henni í framkvæmd. Þannig viljum við framsóknarmenn sýna þjóðinni að við höfum ekki aðeins skipt um fólk í brúnni heldur erum við hægt og bítandi að rétta af kúrsinn. Við erum að gera upp frjálshyggjudrauginn, við erum að endurvekja samvinnuhugsjónina í sinni upprunalegu mynd. Við trúum því að setja eigi manngildi ofar auðgildi og að því erum við að vinna. Við trúum því að stjórnmál byggi á hugmyndafræði og hugsjónum. Við trúum því að ef þingheimur eigi að vinna aftur traust almennings þurfum við að sýna að við eigum okkur hugmyndafræði, að við eigum okkur hugsjónir og að við þorum að berjast fyrir þeim. Við þurfum að sýna að við eigum okkur framtíðarsýn og við þurfum að deila henni með þjóðinni.

Við framsóknarmenn eigum okkur framtíðarsýn um nýtt Ísland sem byggir á sanngirni, samvinnu og samstöðu. Við framsóknarmenn eigum okkur framtíðarsýn um nýtt Ísland — þar sem manngildið er sett ofar auðgildi.

Við eigum okkur hugsjónir og við erum ekki hrædd við að berjast fyrir þeim. — Góðar stundir.