138. löggjafarþing — 141. fundur,  14. júní 2010.

almennar stjórnmálaumræður.

[22:17]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Þjóðin lifir á miklum umbrotatímum. Líf margra hefur farið úr skorðum og allir standa frammi fyrir því að þurfa að takast á við afleiðingar efnahagshrunsins. Aðstæður fólks eru þó mjög mismunandi til að vinna sig í gegnum þessar þrengingar, enda var fjárhagsstaða fólks missterk þegar áfallið reið yfir og fjárhagslegar skuldbindingar voru af ýmsum toga. Við þennan risavaxna vanda heimila, fyrirtækja og þjóðarbúsins hefur Alþingi Íslendinga verið að glíma við hátt á annað ár. Mjög margt hefur áorkast en enn er glímt við stór verkefni eins og atvinnuleysið, skuldastöðu þeirra sem verst eru settir og að tryggja þeim örugga framfærslu. Enn fremur verður Alþingi að ávinna aftur traust þjóðarinnar og einnig meðal annarra þjóða með því m.a. að ganga frá þeim skuldbindingum sem þjóðin situr uppi með eftir hrunið.

Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa aldrei farið dult með það að erfiðir tímar tækju við í kjölfar hrunsins og að sársaukafullar aðgerðir mundu fylgja í kjölfarið sem ekki yrðu umflúnar við þessar aðstæður. Við lýstum okkur reiðubúin til verka og hér erum við stödd á miðri leið og ekkert annað í boði en að ljúka því verkefni sem okkur var falið ásamt Samfylkingunni, að endurreisa íslenskt efnahagslíf eftir brotlendingu frjálshyggjunnar og stjórnvaldsaðgerða liðinna ára. Þjóðin treystir vinstri flokkunum til að takast á við afleiðingar hrunsins og endurreisa efnahaginn á heilbrigðari grunni og undir því trausti ætlum við að standa. Þótt gefið hafi á bátinn af og til munum við spýta í lófana og ljúka því verkefni sem okkur var falið.

Atvinnuleysi má ekki festast í sessi. Því hafa stjórnvöld gripið til fjölda aðgerða og stór áform eru í pípunum sem munu skila sér í fjölgun starfa í byggingariðnaði, verktöku, ferðaþjónustu, nýsköpun og sjávarútvegi, svo eitthvað sé nefnt.

Vinnumarkaðsaðgerðir hafa líka skilað árangri og samvinna við menntamálaráðuneytið hefur verið mikilvæg til að stuðla að virkni og menntun ungs fólks sem er á atvinnuleysisskrá. Mennt er máttur og fjölbreytt menntun auðveldar þjóðinni að mæta áföllum hverju sinni og virkja það hugvit og sköpunarkraft sem býr í landinu til endurreisnarstarfs.

Atvinnumálin eru velferðarmál og þau eru undirstaða þess að hagvöxtur eflist. Það eru mannréttindi fólks á vinnumarkaði að hafa atvinnu og geta tryggt sér og sínum framfærslu. Því er það mikilvægt að opinberir aðilar og einkageirinn sameinist í því að hleypa af stað brýnum framkvæmdum og viðhaldsverkefnum sem hleypa lífi í vinnumarkaðinn. Ekki er síður mikilvægt að verja þau störf sem fyrir eru í velferðarþjónustunni og gefa litlum og meðalstórum fyrirtækjum tækifæri á að byggja sig upp og ráða til sín fleira fólk. Að því hafa stjórnvöld verið að vinna.

Tryggja verður sameign þjóðarinnar á auðlindum landsins í stjórnarskrá. Þegar þjóð er í vanda vakna við ýmsir draugar og hrægammar hafa læst klóm sínum í auðlindir okkar í gegnum þá einkavæðingu sem hafin var í tíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Tryggja verður með öllum ráðum að þjóðin hafi full yfirráð yfir auðlindum sínum og nýtingu þeirra. Fiskveiðistjórnarkerfið er dæmi um þær deilur sem verið hafa meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar. Núverandi ríkisstjórn hefur skýrt umboð til að gera breytingar á fiskveiðilöggjöfinni.

Starfshópur skipaður fulltrúum stjórnmálaflokka og hagsmunaaðila hefur látið vinna mikla greiningarvinnu um stöðu sjávarútvegsins og hvaða leiðir séu vænlegastar til að ná þeim markmiðum að eignarhald þjóðarinnar sé tryggt, að eingöngu sé um nýtingarrétt að ræða, að atvinna og byggðir verði efldar, að hagkvæmni og sjálfbærni sé tryggð og að skapaðir verði möguleikar á nýliðun í greininni. Strandveiðarnar eru gott dæmi um opnun á kerfið sem hleypt hefur lífi í mörg sjávarpláss og kveikt von um að breytingar séu fram undan og möguleikar á nýliðun í greininni án gífurlegra fjárfestinga. En það er sorglegt að sjá hve sjávarútvegurinn er skuldsettur í dag og hvað búið er að taka mikið fjármagn úr greininni og fjárfesta í óskyldum rekstri og áhættufjárfestingum sem tapast hafa. Starfshópurinn mun innan tíðar skila af sér tillögum til sjávarútvegsráðherra um þá valkosti sem nefndin mælir með við endurskoðun laga um stjórn fiskveiða. Síðan þarf að taka pólitíska ákvörðun sem fyrst á grundvelli þeirra tillagna.

Góðir landsmenn. Í erfiðleikum geta falist tækifæri. Við eigum að nýta þessa umbrotatíma til að stokka upp spilin og gefa upp á nýtt, forgangsraða í þágu velferðar og samfélagslegrar ábyrgðar, varðveita það sem vel hefur verið gert í gegnum árin, greina í sundur skammtímagræðgishyggju á kostnað heildarhagsmuna þjóðarinnar. Þá mun okkur vel farnast.