almennar stjórnmálaumræður.
Frú forseti. Kæra þjóð. Nú er ég búin að vera í rúmlega ár á þessu sögulega þingi þar sem hriktir í stoðunum og flestir hér inni virðast ekki gera sér almennilega grein fyrir því að virðing þessarar stofnunar meðal þjóðarinnar er glötuð. En það er einmitt í þessari glötun sem tækifærin felast, í hinu algera hruni er tækifæri til að byrja upp á nýtt. Okkar er að finna það tækifæri og hrinda því í framkvæmd. Til þess að það sé mögulegt verða ráðamenn að hafa hugrekki. Þjóðin gaf tóninn þegar hún tók um stund völdin í sínar hendur og krafðist breytinga og þáverandi ríkisstjórn hrökklaðist frá völdum. Margt af því sem kallað var eftir hefur orðið að veruleika. Þeir ráðamenn sem krafist var að segðu af sér á þeim tíma voru tilneyddir til þess. En það er bara ekki nóg. Ef það skortir sýn, dug til framkvæmda og hugrekki til að skapa hér nýjan veruleika, blasir við að ekkert muni breytast. Sömu aðilarnir halda áfram að arðræna þjóð og land og sömu klíkurnar sitja að hinum svokölluðu kjötkötlum.
Sennilega er ekkert eins óþægilegt og óvissan um afkomu og framtíðarhorfur. Ég efast ekki um að flestir þeir sem sæti tóku á Alþingi eftir kosningar höfðu bara eitt leiðarljós í huga, að vinna að stefnu sem gæti orðið þjóðinni til hagsbóta. En það er bara ekki nóg á slíkum tímum því að pólitískar stefnur flækjast fyrir. Grunnþarfir mannsins gleymast og sú einfalda staðreynd að við eigum bara þessa einu jörð saman og það er ekki hægt að redda nýrri með kúlulánum.
Ein af grunnþörfum mannsins er vatn. Nú ríkir mikil óvissa um eignarhald á vatninu okkar vegna umdeildra laga sem fóru í gegnum þingið árið 2006 og eiga að taka gildi eftir tvær vikur. Ég lærði þegar ég var ung að árum að maður ætti aldrei land. Enginn á land en við gætum lands og þeirra gæða sem land færir þjóð. Okkur ber að gæta landsins sem við upplifum sem okkar á þann veg að næstu kynslóðir geti notað sömu gæði lands og við. Þannig þarf það alltaf að ganga koll af kolli, kynslóð eftir kynslóð, annars verður ekki neitt eftir fyrir komandi kynslóðir. Það er svo auðvelt að glopra lífsgæðunum úr höndum okkar ef við förum ekki varlega og pössum þessi gæði eins og sjáaldur augna okkar.
Um helgina vaknaði stór hluti þjóðarinnar við þann veruleika að við gætum verið að glopra frá okkur bláa gullinu, vatninu okkar, en maður drekkur ekki gull og því finnst mér sú samlíking ekki góð. Við erum að glata lífinu ef við glötum vatninu. En hvernig er hægt að glata vatni? Það er allt fullt af vatni á Íslandi. Einkavæðing vatns er ekki bara hættuleg hugsun heldur háskalegur veruleiki sem aðrar þjóðir hafa þurft að heyja harða baráttu gagnvart. Bólivía glataði vatninu sínu í hendur einkaaðila. Það var fyrirtækið Bechtel sem reisti hið víðfræga álver í Reyðarfirði sem fékk vatnsréttindin í sínar hendur þar í landi. Því tókst meira að segja að einkavæða vatnið sem féll af himnum ofan og var almenningi meinað að safna regnvatni til neyslu án greiðslu. Það væri dæmigert ef okkur tækist að sannfæra sjálf okkur um að slíkt gæti aldrei átt sér stað hérlendis. Gleymum því ekki að það sem okkur þótti óhugsandi fyrir hrun er nú orðið að veruleika. Erlent fyrirtæki hefur komið höndum yfir orkuna okkar og þannig mun þetta halda áfram og áfram og áfram ef við spyrnum ekki við fótum eigi síðar en núna.
Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki fella úr gildi þessi umdeildu lög frá 2006 sem hafa sem betur fer enn ekki öðlast gildi og því búum við enn við gömlu lögin sem skapa ekki þessa hættu á einkavæðingu. Það síðasta sem væri skynsamlegt að gera núna er að skapa áframhaldandi óvissu um vatnið okkar. Því skora ég á þingmenn Sjálfstæðisflokksins að endurskoða afstöðu sína varðandi vatnalögin og standa ekki í vegi fyrir að þau verði felld úr gildi. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á meiri óvissu en hún býr við nú þegar. Það er bara ekki ásættanlegt. Ef Sjálfstæðisflokkurinn kýs að halda þingi og þjóð í gíslingu út af þessu máli er ljóst að sá flokkur má alls ekki komast til valda um langa hríð því að stefna hans er beinlínis hættuleg þjóðarhagsmunum.
Ég gæti svo sem eytt dýrmætum tíma hér í kvöld í að kvarta yfir núverandi ríkisstjórn og ríkisstjórnum allra tíma en ég held að aðrir munu sjá um slíkar ræður í kvöld og ég ætla hvorki að þreyta þjóð né þing með því. Frekar vil ég benda á að öryrkjar og eldri borgarar búa við hörmuleg kjör og virðist þessi hópur fólks fá ákaflega lítinn skilning á því að fæstir þeirra geta dregið fram lífið á þeim mánaðarskammti sem þeim er úthlutaður. Það er lítil reisn yfir þingi sem samþykkir að þetta sé ásættanlegt. Það eru nefnilega svo óendanlega margir sem bera harm sinn í hljóði, sem segja helst ekki frá því að þeir eigi ekki til hnífs og skeiðar. En hópurinn fer sífellt stækkandi sem er nauðbeygður til að standa í löngum biðröðum til að fá sífellt smækkandi matarskammt hjá hjálparsamtökum sem úthluta mat. Samtökin anna ekki eftirspurn. Já, það er lítil reisn yfir þingi sem samþykkir slíkt.
Vandamálin sem að okkur steðja virðast vera óyfirstíganleg ef við höfum ekki dug og þor til að gera eitthvað róttækt og hugsa til framtíðar og hætta að reyna að tjasla í götin á ónýtri aðferð sem á endanum kom okkur í það þrot sem við búum við í dag. En í hinu algera þroti sem ól af sér annað eins siðrof og við upplifðum er kannski gæfa okkar fólgin. Fæstum leið vel í hrunadansinum því að efnisleg gæði geta aldrei fært okkur lífshamingju ein og sér. Hið algera hrun skóp af sér meðvitund um að hér þurfi að verða alvörulýðræðisumbætur. Fæstar þeirra komust á dagskrá þessa þings en þó er ein viðamikil sem gæti orðið að veruleika á næstunni og það er stjórnlagaþing, að við semjum nýja stjórnarskrá. Ég verð þó að viðurkenna að mér finnst hugtakið stjórnarskrá frekar þurrt og óspennandi og stjórnlagaþing kveikir ekki í mér sem orð nema það sé frekar hugsað sem þing fólksins, samkoma almennings um samfélag sitt — kannski tek ég þetta orð í sátt ef stjórnlagaþing yrði að slíku þingi — þing fólksins, vettvangur orðræðu um hvert við ætlum saman í framtíðinni, hvað okkur finnst mikilvægast og hvað það er sem við getum öll verið sammála um.
Ég veit ekki hvað öllum finnst mikilvægt og þess vegna langar mig til að fá tækifæri til að eiga þetta samtal við aðra Íslendinga. Mig langar að heyra hvað fólki finnst að verði að vera í stjórnarskrá, samfélagssáttmálanum okkar. Mig langar til að ræða við fólk um það og sjá hvað fær þjóðarsálina til að slá í samhljómi. Ég held nefnilega að væri fólk hvatt til þess og gefið tækifæri og verkfæri mundi það vilja hafa svo miklu meiri áhrif á samfélagið sitt en flestir gera í dag. — Takk fyrir að hlusta.