almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Gott kvöld, góðir landsmenn. Í Vestmannaeyjum, mínum heimabæ, eru nokkrir einstaklingar mjög andsnúnir vinstri stjórnum, svo vægt sé til orða tekið. Einn þeirra sagði í fyrravor: Ef það kemur vinstri stjórn verður enginn lundi. [Hlátur í þingsal.] Það stóð heima, en um orsakasamhengið skal ósagt látið. Rökræðan er stundum svolítið snúin.
Í rannsóknarskýrslu Alþingis sem kom út í apríl sl. er að finna kafla í 8. bindi sem fjallar um íslenska stjórnmálamenningu. Niðurstaða skýrsluhöfunda er að íslensk stjórnmálamenning sé vanþroskuð og að hún einkennist um of af miklu valdi ráðherra og oddvita stjórnarflokka, Alþingi sinni illa umræðuhlutverki sínu vegna ofuráherslu á kappræðu þar sem þekking og rökræður víki fyrir hernaðarlist og valdaklækjum. Þar segir líka að þingið sé illa í stakk búið til að rækja eftirlitshlutverk sitt, m.a. vegna ofríkis meiri hlutans og framkvæmdarvaldsins, sem og skorts á faglegu baklandi fyrir þingið. Andvaraleysi hafi verið ríkjandi gagnvart því í íslensku samfélagi hvernig í krafti auðs safnaðist á fárra hendur og ógnaði lýðræðislegum stjórnarháttum.
Það er full ástæða til að staldra við þennan kafla í rannsóknarskýrslunni. Bent er á að leita þurfi leiða til að styrkja siðferðisvitund stjórnmálamanna og auka virðingu þeirra fyrir góðum stjórnsiðum. Í því skyni þyrftu þingmenn m.a. að setja sér siðareglur og skýra þar með fyrir sjálfum sér og almenningi hvernig þeir skilja meginskyldur sínar og ábyrgð. Í rannsóknarskýrslunni segir enn fremur, með leyfi forseta:
„Draga þarf úr ráðherraræði og styrkja eftirlitshlutverk Alþingis.
Efla þarf góða rökræðusiði meðal þjóðarinnar og kjörinna fulltrúa hennar. Í því skyni þyrfti að vinna skipulega að því í skólum landsins að búa nemendur undir þátttöku í lýðræðissamfélagi með þjálfun í málefnalegri rökræðu og skoðanaskiptum.
Taka þarf stjórnarskrána til skipulegrar endurskoðunar í því skyni að treysta grundvallarinnviði lýðræðissamfélagsins og skýra betur meginskyldur, ábyrgð og hlutverk valdhafa.“
Lykillinn að bættri stjórnmálamenningu á Íslandi er endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins og sú vinna er að fara af stað samkvæmt frumvarpi um stjórnlagaþing sem samkomulag náðist um í allsherjarnefnd fyrir stuttu. Raunar hefur samstarfið í þeirri nefnd á síðustu dögum gefið mér von um að okkur ætti að geta tekist að breyta stjórnmálahefðinni strax á þessu þingi í átt til batnaðar. Þar ríkir eindrægni og góður starfsandi.
Það er auðvelt fyrir okkur sem erum í stjórnarmeirihlutanum að tala um þörfina á samstöðu og hófstilltri framgöngu í opinberri umræðu, enda gagnast það fyrst og fremst ríkjandi stjórnvöldum, meiri hlutanum, ef minni hlutinn er til friðs. Hlutverk minni hlutans er að vera gagnrýninn á hugmyndir stjórnvalda og veita þeim aðhald. Þannig hefur íslensk stjórnmálamenning þróast og á þessu þurfa að verða tvær meginbreytingar að mínu viti.
Í fyrsta lagi er það líka í verkahring meiri hlutans á þingi að veita stjórnvöldum aðhald.
Í öðru lagi er stjórnarandstaðan hluti af stjórn landsins. Það er skylda stjórnvalda að hlusta á hana, taka mið af stefnu hennar og almennt að haga málum þannig að eins mikil sátt náist og nokkur kostur er á. Það kallar sem sagt líka á eftirgjöf meiri hlutans.
Meiri hlutinn getur ekki bara farið sínu fram og krafist þess að minni hlutinn sé til friðs vegna þess að samstaðan sé nauðsyn, svoleiðis virka hlutirnir ekki. Það er líka á ábyrgð stjórnarmeirihlutans að ákvarðanir séu teknar, áætlanir gerðar og þær framkvæmdar. Samstarfið má ekki leiða til kyrrstöðu. Þetta er viðkvæmur línudans.
Eftir u.þ.b. ár tekur þessi stofnun við drögum að nýrri stjórnarskrá frá stjórnlaganefnd, þjóðfundi og stjórnlagaþingi. Sögulegt mikilvægi þessa þings sem nú situr er mikið. Við erum fyrsta löggjafarsamkoman sem kemur saman eftir hrun. Hér hafa hörð átök einkennt þingstörfin. En eftir því sem tíminn líður hefur það komið skýrlega í ljós í mínum huga að á þingi er að finna úrvalsfólk í öllum flokkum sem er sameinað hér í því verkefni að varða leiðina út úr þeim ógöngum sem við komum okkur í, sameiginlega. Það vekur mér von um bjarta framtíð lands og þjóðar. Sögulegt mikilvægi þessarar samkomu, þeirra þingmanna sem nú sitja á þingi, verður enn meira þegar tillögur að nýrri stjórnarskrá koma hingað inn að ári. Þá reynir á samstöðuna og getu okkar til að ræða saman, sætta sjónarmið, gera málamiðlanir, vinna saman.
Kæru landsmenn. Það er engin ástæða til að láta hugfallast við þær aðstæður sem nú eru uppi. Landið er gjöfult og þjóðin vel menntuð. Þetta land var ekki byggt í þúsund ár í uppgjöf heldur von, von um betri tíð. Sú von á ekki að vera blind trú á að þetta reddist einhvern veginn, heldur von sem byggir á þeirri raunsæislegu vissu að samtakamátturinn og einbeitingin muni skila okkur árangri, ekki í auðsöfnun heldur raunverulegum lífsgæðum, góðu lífi í frábæru landi — fyrir alla.