138. löggjafarþing — 143. fundur,  16. júní 2010.

greiðsluaðlögun einstaklinga.

670. mál
[04:40]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (F):

Frú forseti. Eitthvað er sérkennilegt við það að ræða skuldavanda heimilanna á meðan heimilin sofa en það verður að hafa það. Að baki þessum frumvörpum liggur mikið starf og ég vil, eins og aðrir sem tekið hafa til máls í þessari umræðu, þakka nefndarmönnum í félags- og tryggingamálanefnd kærlega fyrir samstarfið. Ég tel að við höfum unnið mjög vel að þessu, unnið mjög faglega. Við fórum í mjög víðtækt samráð við alla viðeigandi aðila, mjög mikið samráð við réttarfarsnefnd og aðra lögfræðinga, enda er viðfangsefnið í eðli sínu fremur flókið. Við erum í raun og veru að reyna að auka rétt skuldara að mörgu leyti á kostnað kröfuhafa og við erum að reyna að gera það þannig að það standist lög. Það er í rauninni verkefnið og það er ekki einfalt vegna þess að kröfuhafar hafa sinn stjórnarskrárbundna eignarrétt á kröfum.

Þetta verkefni unnum við í nánu samráði við þá sem gerst þekkja til, lögfræðinga á þessu sviði, og ég er fremur vongóður um að við höfum hitt á nokkuð góða lausn hvað þetta varðar, greiðsluaðlögun einstaklinga. Ég held þó að í málum af þessu tagi, eins og reynslan er líka í Skandinavíu, muni reynslan kenna okkur ýmislegt. Samræðan við reynsluna á eftir að fara fram og við sjáum það ekki fyrir hvað reynslan mun segja okkur en það er alveg ábyggilegt að hún mun segja okkur eitthvað þannig að einhverjar breytingar þarf vafalítið að gera.

Hv. þm. Eygló Harðardóttir tæpti á einu atriði sem er ákaflega mikilvægt og það er að hvatinn í þessu greiðsluaðlögunarferli verði til þess að menn leiti frekar frjálsra samninga en fara dómstólaleiðina. Við teljum, eins og við leggjum frumvarpið fram nú, að við höfum staðið þannig að því að hvatinn sé til frjálsra samninga frekar en til dómstólaleiðar.

Eitt atriði sem kom upp í starfi nefndarinnar varðaði atvinnurekstur einstaklinga á eigin kennitölu. Eins og lagt var upp með málin í upphaflegum frumvarpsdrögum átti ekki að hleypa skuldum vegna atvinnurekstrar á eigin kennitölu í greiðsluaðlögun en við breytum þessu — það átti ekki að hleypa skuldum vegna atvinnurekstrar á eigin kennitölu nema að hluta til. Við fellum alfarið út þessar takmarkanir og hleypum að einstaklingum sem hafa stofnað til skulda á eigin kennitölu vegna atvinnurekstrar. Þarna erum við ekki síst að hugsa um bændur. Bændur hafa þannig atvinnurekstur að heimili þeirra eru oft undir og þeir hafa oft reksturinn á sinni eigin kennitölu og hafa stofnað til skulda á þann veg. Þeir hafa stofnað til skulda sem einstaklingar og við horfum til þess að meginreglan í frumvarpinu er sú að þetta varðar skuldir einstaklinga og þá er það algerlega burt séð frá því hvernig þeir hafa stofnað til þeirra skulda, þó ekki algerlega vegna þess að í vissum greinum frumvarpsins eru tilteknar ýmsar takmarkanir.

Þetta frumvarp og frumvörpin sem við ræðum hér í kippu, þrjú frumvörp og eitt nefndarálit sem félags- og tryggingamálanefnd leggur fram, leysa auðvitað ekki allan vanda. Skuldavandi heimila á Íslandi er mjög mikill og hefur verið mikill um langt skeið en hann er einkum og sér í lagi mikill eftir hrun efnahagslífsins. Hér erum við vonandi að leysa varanlega vanda þeirra sem eru mjög illa settir en við leysum ekki vanda þeirra sem ná endum saman með herkjum. Við leysum ekki vanda þeirra sem eru með stórbrotna neikvæða eiginfjárstöðu langt umfram það sem lagt var upp með og eiga beinlínis í vandræðum, jafnvel fyrirsjáanlega um langa framtíð, með að ná endum saman en gera það þó. Skilyrði fyrir því að fara í greiðsluaðlögun er að ná ekki endum saman þannig að við leysum ekki vanda þessa hóps, kannski má segja að það sé hin stóra millistétt, með þessu.

Þá ætla ég í örstuttu máli að nefna það sem mun hjálpa því fólki — við verðum auðvitað að fara að spýta í lófana í þeim efnum: Við verðum að ná niður vaxtastigi þannig að skuldbreytingar sem er verið að bjóða upp á í kjölfar höfuðstólslækkunar verði fýsilegri. Ég bind vonir við að aðgerðir varðandi bílalán heimilanna muni létta byrðum af þeim. Ég tel, og við framsóknarmenn höfum talað stíft fyrir því, að fara eigi í skuldaleiðréttingar húsnæðislána á svipaðan hátt og boðaðar eru skuldaleiðréttingar bílalána og það muni létta byrðar af þessum hópi. Við teljum að þetta sé mögulegt að gera án þess að sliga ríkisvaldið. Við bíðum eftir dómi um gengistryggðu lánin og gengið er líka óvissuþáttur. Það þarf að fara í örvandi aðgerðir fyrir fasteignamarkaðinn þannig að fasteignir hækki aftur í verði. Það þarf að skoða gjaldþrotalögin. Fyrning krafna er álitamál og ég tel að það mundi hafa góð áhrif á lánamarkaðinn og bæta stöðu lántakenda ef við mundum búa svo um hnútana að kröfur fyrnist á t.d. fjórum árum samkvæmt gjaldþrotalögum. Svo þarf að spýta í lófana hvað varðar atvinnustig í landinu og kjarabætur almennt þannig að þessi hópur, sem vissulega mun ekki fara í gegnum greiðsluaðlögun, sjái einhverja von. Það er mikilvægasta næsta skref í lánamálum.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég tel einkar mikilvægt að við tölum upp þau úrræði sem við erum að boða, greiðsluaðlögun einstaklinga, greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna, lausn fyrir skuldara sem sitja uppi með tvær eignir og umboðsmann skuldara sem er embætti sem við ætlum að stofna sem er sérstaklega til þess fallið, og er kveðið á um það í lögum, að sinna hagsmunum skuldara. Þetta er alger nýbreytni. Ég tel að þetta séu miklar réttarbætur og ég tel mjög mikilvægt að við tölum þessar réttarbætur ekki niður heldur gefum þeim allan þann séns sem við mögulega getum gefið þeim. Það er brýnt hagsmunamál fyrir öll þau heimili sem eiga í verulegum skuldaörðugleikum í landinu, og það er deilt um það hvað þau eru mörg, að þessi úrræði virki.