138. löggjafarþing — 144. fundur,  16. júní 2010.

fundarstjórn.

[11:11]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir að taka þetta mál upp og tek undir beiðni hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar til forseta um að dagskrá verði breytt og tillagan um að draga til baka umsóknaraðild að Evrópusambandinu verði tekin á dagskrá. Það er brýnt og við Íslendingar getum ekki látið okkur þessar kröfur í léttu rúmi liggja sem nú birtast okkur grímulaust í fjölmiðlum frá Þjóðverjum um það hvernig okkur verði unnt að stunda atvinnu. Ég einfaldlega vil ekki að við sitjum þegjandi undir svona sendingum. Við erum sjálfstæð þjóð, við erum fullvalda þjóð og við eigum að láta í okkur heyra þegar menn koma svona fram.

Síðan hefur sannast á síðustu dögum hvert sambandið er á milli Icesave og Evrópusambandsins, (Forseti hringir.) sem stjórnarliðar hafa margoft ítrekað að hafi ekki verið neitt. Nú hefur sannast að það er rangt.