fundarstjórn.
Frú forseti. Ég óska eftir því að hæstv. forseti setji á dagskrá á næsta fundi mál nr. 669 um að Íslendingar dragi til baka umsókn sína að Evrópusambandinu. Um hana á að fjalla á morgun, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Þegar við fögnum 66 ára afmæli sjálfstæðis Íslands ætla menn að afsala sér því.
Í ljós hefur komið að fjármálakaflinn verður skilinn út undan í umræðunum þar til Íslendingar verða búnir að semja um Icesave. Þá fer nú kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu að verða ansi mikill. Svo er búið að ákveða að við þurfum að fella niður hvalveiðar ef við ætlum að ganga til samninga. Ég vil fá umræðu um þetta á Alþingi, opna umræðu, þar sem hæstv. sjávarútvegsráðherra Jón Bjarnason svarar því hvort (Forseti hringir.) hann sé enn að vinna ötullega að því að koma Íslendingum inn í Evrópusambandið.