efnahagshorfurnar.
Virðulegi forseti. Í gær fór fram umræða um störf ríkisstjórnarinnar og var dregin fram, af hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra, ótrúleg glansmynd sem átti lítið skylt við raunveruleikann þegar þau lögðu mat á stöðu efnahagsmála nú um stundir. Það er rétt sem kom fram hjá þeim báðum að samdráttur í landsframleiðslu varð sem betur fer minni í fyrra en ráð var fyrir gert. Það er sannarlega ástæða til að fagna því að sú kreppa sem reið yfir á haustdögum 2008 varð ekki jafndjúp og við óttuðumst. Það gefur okkur færi á að komast fyrr upp úr þeim mikla efnahagslega öldudal sem við erum nú stödd í.
Þetta er hins vegar afleiðing af þeirri stefnumótun sem ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks lagði á ráðin um ásamt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og við hæstv. núverandi forsætisráðherra stóðum að á sínum tíma. Afraksturinn af því sjáum við í minni samdrætti í landsframleiðslu á síðasta ári. En nú eru verk ríkisstjórnarinnar hins vegar farin að tala. Þau eru farin að sýna sig eða öllu heldur verkleysi hæstv. núverandi ríkisstjórnar. Í dag komu fram tölur frá Hagstofunni sem ég trúi ekki öðru en hæstv. forsætisráðherra hafi vitað um þegar hún flutti ræðu sína í gær. Tölurnar segja okkur að talið sé að landsframleiðsla hafi dregist saman um 3,1% að raungildi frá fyrsta ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2010.
Nú spyr ég hæstv. ráðherra, sem sagði okkur að allt væri blúndulagt og gott í efnahagsmálum þó að við mundum samt sem áður þurfa að búa við erfiðan vetur: Hvernig stendur á þessum tölum þegar hæstv. ráðherra talaði þannig í gær að það hefði mátt ætla að hér væri hafinn bullandi hagvöxtur og landsframleiðslan að aukast?