138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

staða heimilanna.

[10:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Fyrir nokkrum mánuðum sendi ríkisstjórnin skjal til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem því var lýst yfir að Íslendingar mundu taka á sig Icesave-kröfur. Einnig var því lýst yfir að eftir október á þessu ári, komandi október, yrðu engar frekari frystingar lána, engar frekari frestunaraðgerðir í uppgjöri á útistandandi skuldum.

Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvaða ráðstafanir hefur ríkisstjórnin gert til að bregðast við afleiðingum þessa? Varla gerir ríkisstjórnin ráð fyrir því að hér fari þúsundir eigna á nauðungaruppboð. Því spyr ég hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar. Ég held að það sé ástæða til að spyrja því að ríkisstjórnin hefur ekki verið þekkt fyrir að huga að því sjálf að gera fyrirbyggjandi ráðstafanir. Allir þekkja gjaldeyrislánin eða myntkörfulánin þar sem fyrir höfðu legið álit, þess efnis að lánin væru ólögmæt, í heilt ár. Ekkert var gert í því. Svo urðu sömu ráðherrar og höfðu þessi álit afskaplega undrandi á dómi Hæstaréttar. Afleiðingarnar sitjum við enn þá uppi með, algera óvissu um framhaldið. Sama átti við um Magmamálið. Þá höfðum við ár til að bregðast við. Málið er í rauninni löngu komið upp en kom svo ríkisstjórninni algerlega í opna skjöldu þegar búið var að ganga frá samningunum. Þetta er reyndar í samræmi við yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar sem hafði það nánast sem kjörorð að það væri ekkert plan B og þar af leiðandi þyrftum við að fylgja ráðstöfun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins út í hörgul. En er til eitthvert fyrirbyggjandi plan til að bregðast við þeim vanda sem kemur upp þegar farið verður að framfylgja yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi stöðu heimila og fyrirtækja?