málefni lífeyrissjóðanna og Landsbankans.
Frú forseti. Varðandi það sem hv. þingmaður spurði reyndar í fyrri ræðu hef ég ekki neinar upplýsingar um það að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi komið að málinu, skipt sér af því eða hafi á því skoðun, bara alls engar, og þætti afar fjarstæðukennt að svo væri. Þetta eru viðskipti milli aðila, þetta er úrvinnsla á málum skuldugra fyrirtækja sem bankinn var kominn með í fangið og það skiptir máli að slík mál séu kláruð og unnið úr þeim. Framtakssjóðurinn var settur á fót af lífeyrissjóðunum, hann er sameiginlegur fjárfestingarsjóður þeirra og um hann gilda þar af leiðandi önnur ákvæði en um fjárfestingar einstakra lífeyrissjóða hvers fyrir sig. Ég þekki að sjálfsögðu ekki nákvæmlega til þess hvar skuldir þessara fyrirtækja lágu og hvort einhverjar þeirra voru við tiltekna lífeyrissjóði, en það liggur í hlutarins eðli að þar gat ekki verið um að ræða neina skuldajöfnun eða annað slíkt vegna þess að sjálfstæður aðili kemur að málinu, Framtakssjóðurinn sem slíkur, ekki þeir einstöku lífeyrissjóðir sem á bak við hann eru. En sjálfsagt (Forseti hringir.) verða frekari upplýsingar reiddar fram um allt þetta mál á komandi tímum og skoðað ofan í kjölinn hvort eðlilega hafi verið staðið að málum.