árleg ráðstefna á Akureyri um málefni heimskautasvæðanna.
Frú forseti. Það fór ekki fram hjá neinum að hér talaði síðastur manna sannkallaður sendiherra Akureyrar. Reyndar bar hann eitt sinn formlega þann titil af hálfu bæjarstjórnar þar. Allt er það rétt sem hann segir um uppbygginguna á Akureyri. Það er hárrétt að Háskólinn á Akureyri er sennilega besta dæmið um mjög vel heppnaða byggðaaðgerð á Íslandi. Hún var umdeild á sínum tíma. En menn stóðu af sér þá sjóa sem upp brotnuðu, ekki síst úr öðrum fræðastofnunum. Það sem hv. þingmaður segir um hina nýju menningarhöll er líka hárrétt. Ég dreg þó í efa, miðað við fregnir af því að menn eru þegar farnir að panta það hús undir hvers kyns menningartengda atburði, að það þurfi sérstaka þingsályktunartillögu um ráðstefnu til að skapa því einhvern tilgang.
Ég ætla að mæla örfá orð til hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar sem hefur nú, illu heilli, horfið af vettvangi. Í sumar þegar ég fór til Kína í opinbera heimsókn ræddi ég bæði við varaforseta Kína, utanríkisráðherra Kína og borgarstjórann í Sjanghæ um samstarf á sviði ýmiss konar verka sem tengjast norðurslóðum. Frá því er skemmst að segja að þeir tóku mjög undir það. Í morgun hélt forseti Íslands í ferð til Kína þar sem hann mun m.a. sækja ráðstefnu sem haldin er á vegum sérstakrar norðurslóðamiðstöðvar í Sjanghæ. Þessi mál eru því á hreyfingu. Ég gat þess í fyrri ræðu minni að Kínverjar hefðu þegar komið upp rannsóknasetri á Svalbarða og það er ljóst að þeir hafa mikinn áhuga á norðursvæðum. Ég tel að við eigum að reyna að örva samstarf við erlendar þjóðir. Það væri mjög vel til fundið ef erlendar þjóðir sendu fræðimenn hingað til Íslands að rannsóknasetrunum á Akureyri til að efla þetta samstarf til lengri eða skemmri dvalar, ekki síst Kínverjar. Ef einhver erlend þjóð óskar eftir því að setja upp rannsóknarstofu hér munum við auðvitað ræða það málefnalega.
Ég sagði í fyrri ræðu minni að ef svo færi, eins og ég tel að muni verða, að Ísland gangi í Evrópusambandið þá er alveg ljóst að eitt af því sem mun verða ríkt í samstarfi Evrópusambandsins og Íslands eru rannsóknir og vöktun á norðurslóðum. Ljóst er að Evrópusambandið mun þurfa að setja upp rannsóknarstöð sem tengist norðurslóðum. Ég er þeirrar skoðunar að slík rannsóknarstöð eigi að vera hér á landi og hún eigi að vera á Akureyri. Eitt af því sem við munum berjast fyrir í samningum við Evrópusambandið, sem íslenska þjóðin fær svo að greiða atkvæði um, er að ESB setji upp miðstöð norðurslóðarannsókna og hún verði sett niður á Akureyri. Það mundi hafa mjög sterk áhrif á háskólasamfélagið þar. Við vitum hvernig Evrópusambandið ræðst í svona verkefni. Það gerir það af miklum þrótti. Það mundi styðja við margt sem þar er að gerast. Þá mun þessi mjói vísir gildna mjög og vonandi verða að sterkum meiði. Hann gæti orðið uppistaðan í slíkri miðstöð. Þetta mundi leiða til þess að hingað kæmu fræðimenn á margvíslegu sviði og tækju sér bólfestu hér. Þetta mundi sömuleiðis leiða væntanlega til þess að íslenskir námsmenn sem hafa sótt sér menntun á þessu sviði, innan deildarinnar sem kennir heimskautarétt og annarra stofnana og sinna ýmsum verkefnum af þessu tagi, fengju viðfang fyrir hendur sínar og huga. Þetta skiptir mjög miklu máli. Þetta er eitt af því sem mundi leiða af sér mjög jákvæða hluti fyrir Ísland og íslenskt fræðasamfélag, ekki síst Akureyri og Norðurland, ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Þetta þurfa menn að hafa í huga. Þeir þurfa að skoða svona hluti. Hvað gætum við sótt í Evrópusambandið til að byggja upp rannsóknastofnanir okkar og háskóla og aðrar mikilvægar stofnanir? Þetta er eitt gott dæmi um það.
Þetta vildi ég segja, frú forseti, ef það mætti verða til að róa afstöðu hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar til Evrópusambandsins. Mér sýnist að hann hafi ekki fylgst nægilega með þróun þessara mála og afstaða hans mótist fremur af því sem skrifað er í leiðurum Morgunblaðsins á degi hverjum og öllum þeim bölmóði sem þar má lesa en af staðreyndum málsins.