árleg ráðstefna á Akureyri um málefni heimskautasvæðanna.
Forseti. Ég kem upp til að taka hjartanlega undir orð hæstv. utanríkisráðherra um þann þátt málsins sem lýtur að Evrópusambandinu. Ég hef kynnt mér ágætlega hvernig Evrópusambandið dreifir rannsóknum sínum og stofnunum til þeirra 27 landa sem eru nú þar eru innan borðs, og bráðum 28 að ég held. Það er aðdáunarvert að sjá hvernig stærri þjóðir haga rannsóknum sínum og stofnanagerð að mörgu leyti. Ég horfi þar til fimmta stærsta hagkerfis í heimi, Kaliforníu, sem hefur lagt sig í líma á undanförnum árum og áratugum við að dreifa stofnunum sínum um fylkið, þó ekki sé til annars en að forðast umferðarteppur í stóru borgunum. Þetta gerir Evrópusambandið í auknum mæli og má lesa í mörgum greinum hvernig það hagar rannsóknastarfi sínu. Það kemur starfinu út til þeirra svæða þar sem verkefnin eru. Eðli málsins samkvæmt mundi það hæglega geta leitað til Íslands og Íslendinga, og þá e.t.v. Akureyringa, til að koma á laggirnar dugmikilli rannsóknastofnun og vöktun á norðurhveli jarðar. Það verður, eins og ég gat um í ræðu minni áðan, í æ meiri brennidepli á komandi árum. Ég vil skora á hæstv. utanríkisráðherra að beita sér í þessu efni. Ég held að svona árleg ráðstefna um málefni norðurskautssvæðanna á Íslandi muni skerpa mikilvægi þessara mála og leiða saman allt það vit sem er til staðar í málaflokknum og setja kannski Ísland í forgrunn hans. Til þess þurfum við að halda ráðstefnur, til þess þurfum við að safna viti og fræðum og sækja síðan fram til sóknar hvað varðar stofnanir á alþjóðasviði.