138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.

597. mál
[12:24]
Horfa

Frsm. allshn. (Róbert Marshall) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 162 frá 2006, um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Þetta er frumvarp sem samkomulag var um á milli formanna stjórnmálaflokkanna á síðastliðnum vetri að flytja hér í þinginu og kom til umfjöllunar í allsherjarnefnd nú á síðustu tveimur vikum.

Nefndin hefur fjallað um þetta mál allnokkuð og borist hefur umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Með því er lagt til að aukið verði á gagnsæi fjárframlaga til stjórnmálasamtaka og jafnræði þeirra á milli. Þá er lagt til að reglur laganna um framlög frambjóðenda frá einstaklingum og lögaðilum og um upplýsingaskyldu þeirra taki einnig til frambjóðenda í forsetakosningum ásamt því að kveðið verði á um leyfilegan hámarkskostnað frambjóðenda í forsetakjöri til kosningabaráttu.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að unnið sé út frá þeirri reynslu er fengist hefur af framkvæmd laganna ásamt því að byggjast á tilmælum sem GRECO, samtök ríkja gegn spillingu er starfa innan vébanda Evrópuráðsins, beindu til íslenskra stjórnvalda í skýrslu matsnefndar GRECO frá 4. apríl 2008 um gagnsæi fjárframlaga til stjórnmálasamtaka.

Nefndin telur að með frumvarpinu sé stigið skref í rétta átt hvað það varðar að skýra og skilgreina þau mörk sem eðlileg megi telja þegar kemur að fjármálum stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Fjármálareglur stjórnmálaflokka og frambjóðenda eru ekki endanlega afgreiddar með þessu frumvarpi og telur nefndin rétt að ítreka það álit að hér er stigið eitt skref af mörgum nauðsynlegum í þá átt að endurreisa traust kjósenda á stjórnvöldum.

Í 5. gr. laganna er kveðið á um skyldu sveitarfélaga með fleiri en 500 íbúa til að veita fjárframlög til stjórnmálasamtaka. Með frumvarpinu er lagt til að skýrt sé kveðið á um skyldu til að veita þessi framlög árlega. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram tillaga að nýrri málsgrein þar sem kveðið verði skýrt á um að á því ári sem sveitarstjórnarkosningar fara fram fái stjórnmálasamtök framlög fyrir síðari hluta þess árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum.

Nefndin leggur því til að nýr málsliður bætist við b-lið 4. gr.

Nefndin fjallaði nokkuð um hvernig réttast væri að ákvarða leyfilegan hámarkskostnað frambjóðenda í forsetakosningum, þ.e. með hámarksfjárhæð eins og lagt er til í frumvarpinu eða með einhvers konar viðmiði við íbúafjölda þar sem örðugt gæti verið í framkvæmd að breyta fjárhæð rétt fyrir forsetakosningar. Nefndin telur eðlilegra að tengja fjárhæðina við íbúafjölda eins og gert er með frambjóðendur í kosningum til Alþingis og sveitarstjórna og leggur því til breytingu á frumvarpinu sem miðar í þá átt.

Sem fyrr segir er hér á ferðinni frumvarp sem varðar samkomulagsatriði á milli formanna stjórnmálaflokkanna að flytja síðastliðinn vetur. Það er gott upp að ákveðnu marki. Það er hins vegar skoðun þess sem hér stendur og fjölmargra nefndarmanna annarra, sem mér er kunnugt um í allsherjarnefnd, að lengra megi ganga í þá átt sem hér er gengið, enda er tekið fram í frumvarpinu að hér sé stigið skref í rétta átt.

Ég tel fulla ástæðu til að fara með þá breytingu sem hér um ræðir í gegnum þingið og lögfesta hana, enda er hér um að ræða einhvers konar lágmarksviðmið sem stjórnmálaflokkarnir gátu komist að samkomulagi um. Ég áskil mér eftir sem áður rétt til þess að fara lengra í þá áttina sjálfur sem þingmaður hér á Alþingi ásamt með öðrum hv. þingmönnum sem hugsanlega mundu leggja mér lið í því. Ég tel fulla ástæðu til þess að skoða nánar heimildir fyrirtækja til að styrkja stjórnmálasamtök og stjórnmálaflokka og velta upp þeirri spurningu hvort ekki sé nóg gert með opinberu framlagi til stjórnmálasamtaka. Ef þeirri spurningu er svarað neitandi, þ.e. ef fólki finnst ástæða til að heimila fyrirtækjum eða félagasamtökum að styrkja ákveðna frambjóðendur eða stjórnmálasamtök, hvort þar eigi að vera einhvers konar nafnleyndargólf. Ég er þeirrar skoðunar að svo eigi ekki að vera, að öll fjárframlög til stjórnmálasamtaka og stjórnmálamanna eigi að vera uppi á borðum. Ég er tilbúinn til þess hér á næsta þingi, náist um það samstaða, að taka þátt í að flytja slíkt frumvarp og slíka breytingu á lögum um framlög til stjórnmálaflokka. Hér er stigið skref í rétta átt og því fagna ég og styð þetta frumvarp.

Undir þetta nefndarálit skrifa, auk þess sem hér stendur, hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, Mörður Árnason, Birgir Ármannsson, Valgerður Bjarnadóttir — Birgir Ármannsson og Mörður reyndar með fyrirvara — hv. þm. Ólöf Nordal og Þráinn Bertelsson, einnig með fyrirvara.

Hv. þm. Ögmundur Jónasson og Vigdís Hauksdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.