fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin við andsvari mínu. Ég leyfi mér að gera athugasemdir við það sem hann sagði áðan að það væri lítið mál að samþykkja þetta frumvarp því að það væri hægt að flytja annað frumvarp mun ítarlegra sem gengi lengra á næsta þingi. Það er ekki sérstaklega líklegt að slíkt muni ná fram að ganga. Í vinnu þeirrar nefndar sem vann grunninn að þessu frumvarpi liggur að baki samþykki formanna fjórflokksins um það hvernig þetta mál á að vera. Þingmenn fara einfaldlega ekki gegn slíku samkomulagi. Hér er um samtryggingu fjórflokksins að ræða hvað varðar þeirra eigin fjármál. Það er mjög alvarlegt að þeir skuli halda áfram á nákvæmlega sömu braut og gert var fyrir hrun með þann hluta af starfsemi sinni, því að eins og ég sagði áðan kemur skýrt fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar að það sé ólíðandi að slíkt fyrirkomulag verði áfram við lýði.
Núna er tækifærið. Nú ber þingmönnum að nota þetta tækifæri til að segja: Hingað og ekki lengra. Við viljum að þetta verði gert með öðrum hætti, það verði efnt til víðtækrar efnislegrar umræðu, ekki bara í þinginu heldur úti í þjóðfélaginu, um það hvernig stjórnmálaflokkar eiga að starfa. Mig langar að hvetja hv. þingmann til að taka undir þessa hugsun og beita sér fyrir því einmitt á þessum tímapunkti að það verði gert.