fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að lýsa því yfir að mér finnst skammarlegt að Alþingi Íslendinga ætli sér að afgreiða mál um fjármál stjórnmálaflokka með enga þingmenn í salnum nema mig og hv. þm. Margréti Tryggvadóttur og hv. formann allsherjarnefndar, Róbert Marshall. Þetta er lýsandi dæmi um það mál sem verið er að ræða, það laumumál, peningamál stjórnmálahreyfinga og þá staðreynd að þetta frumvarp leggur beinlínis til að framhald verði á því fyrirkomulagi sem var fyrir hrun, að einstaklingar geti gefið stórfé til stjórnmálaflokka án þess að vera nafngreindir, að fyrirtæki geti gefið stórfé til stjórnmálaflokka. Í skjóli þessara laga munu fyrirtæki og einstaklingar geta gefið milljónir og jafnvel tugi milljóna til stjórnmálaflokka með því að gefa til einstakra aðildarfélaga þeirra. Ég veit ekki hvað Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn eða Samfylkingin eru með mörg aðildarfélög úti um allt land, en þau eru örugglega 50 og jafnvel 100. Hér er einfaldlega um að ræða fjárframlög upp á tugi milljóna til þess að kaupa sér aðgang að löggjöf.
Þetta frumvarp, virðulegur forseti, snýst um áframhald á nafnlausum framlögum til stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka sem og fjárframlögum frá fyrirtækjum. Fyrirtækjum sem hafa enga stöðu samkvæmt íslenskri stjórnarskrá sem þátttakendur í lýðræðinu, fyrirtækjum sem hafa ekki atkvæðisrétt, fyrirtækjum sem eru ekkert annað en frontur fyrir eigendur sína. Þannig að ótækt er að afgreiða málið með þessum hætti.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, sem kom út hér í vor og sjálfur forseti Alþingis lofaði svo mjög, segir einfaldlega orðrétt um samspil peninga og stjórnmála, með leyfi forseta. Ég endurtek hér það sem kom áðan frá Margréti Tryggvadóttur:
„Eitt augljósasta tæki viðskiptalífsins til að hafa áhrif á stjórnmálamenn eru bein fjárframlög, bæði til stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmálamanna.“
„Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk á milli fjármálalífs og stjórnmála. Ekki er líðandi að gæslumenn almannahagsmuna gangi erinda einkafyrirtækja með þeim hætti sem gert var í aðdraganda bankahrunsins.“
Ég endurtek, með leyfi forseta:
„Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk milli fjármálalífs og stjórnmála.“
Þetta er sagt í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Þetta frumvarp gerir það ekki, heldur gengur þvert gegn því.
Þrátt fyrir þessa ákveðnu niðurstöðu í skýrslu rannsóknarnefndarinnar og þrátt fyrir áköf andmæli fulltrúa Hreyfingarinnar í allsherjarnefnd fékk þetta mikilvæga mál enga efnislega umfjöllun í nefndinni. Því var hafnað að fá gesti á fund nefndarinnar. Því var líka hafnað að bíða niðurstöðu þingmannanefndarinnar um málið.
Viðbrögð nefndarmanna voru þau að málið hefði legið nógu lengi inni í allsherjarnefnd og það væri tímabært að afgreiða það út úr nefndinni. Málið kom inn í allsherjarnefnd á síðustu dögum vorþingsins og lá inni í allsherjarnefnd vegna þess að Alþingi var í sumarleyfi, ekki vegna þess að það væri svona lengi verið að afgreiða það. Hér er enn eitt dæmið um hvernig þingmenn koma fram af óheilindum í þessu máli þegar þeir ræða um að tímabært sé að afgreiða málið út úr nefndinni.
Fjórflokkurinn sjálfur — Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Vinstri grænir — gæslufélag sinna eigin pólitísku hagsmuna, hefur einfaldlega hafnað því með þessu frumvarpi að skýrsla rannsóknarnefndarinnar hafi eitthvert vægi þegar kemur að peningum til þeirra eigin flokka og þar með til þeirra sjálfra.
Frumvarpið er skýrt dæmi um hvernig rótgróin samtrygging flokkakerfisins kemur í veg fyrir að samfélagið sjálft og lýðræðið njóti góðs af niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis og gagnsætt og óspillt lýðræði virðist einfaldlega ekki vera á dagskrá í þessum þingsal. Peningaþörf flokkanna og þar með þingmanna þeirra skiptir meira máli en opið gagnsæi og lýðræði. Menn gera hvað sem er til að geta verið áfram í pólitík. Ef flokkurinn skuldar stórfé, t.d. skuldar Framsóknarflokkurinn vel á annað hundrað milljónir, þá er það bara það eitt sem skiptir máli.
Ég leyfi mér að benda á það sem ég sagði hér áðan að á bls. 5 í frumvarpinu er talað um að flokkseiningar geti haldið áfram að þiggja fé þannig að tugir eða hundruð flokksfélaga úti um allt land munu taka við 400 þúsundum hvert frá sama fyrirtækinu. Stjórnmálamenn munu halda áfram að taka við stórfé. Flokkseiningarnar munu líka taka við stórfé frá einstaklingum úti um allt land. Einstaklingar og fyrirtæki munu geta keypt sér aðgang að stjórnmálaflokkum.
Á bls. 8 í frumvarpinu er talað um GRECO. Þar segir m.a., með leyfi forseta, „að innleiddar verði reglur sem tryggi nægilegt gagnsæi fjármögnunar framboða til forsetakosninga“.
Það á við um aðrar kosningar sem GRECO fjallar um. Það á að tryggja nægilegt gagnsæi fjármögnunar. Það er ekki verið að gera með þessu frumvarpi. Það er beinlínis verið að fela fjármögnunina með lögum.
Það er athyglisvert að á dagskrá þingsins í dag er aðild Íslands að spillingarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Sá samningur fjallar líka um spillingu í stjórnmálum. Peningar og stjórnmál eru vagga spilltra stjórnmála. Þannig er það bara. Þannig á það ekki að vera, en þannig vilja íslenskir stjórnmálaflokkar hafa það. Það er ótækt.
Ef þetta frumvarp verður afgreitt óbreytt sem lög mun verða áfram til staðar sama umhverfi og sama samspil peninga viðskiptalífs, leyndar og stjórnmála og var fyrir hrunið, sem var sú eitraða blanda spillingar sem átti svo stóran þátt í hruninu og þá má Alþingi hafa skömm fyrir. Þeir þingmenn sem hrökkluðust út af þingi vegna vafasamra fjármálatengsla, eins og t.d. Illugi Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, munu fá grænt ljós frá fjórflokknum til að skríða hér aftur inn á þing eins og ekkert hafi í skorist og bræðralag fjórflokksins mun taka á móti þeim. Aðrir lagsbræður þeirra sem hafa setið hér algerlega forhertir munu sitja glaðhlakkalegir áfram.
Þetta er afleit niðurstaða. Hreyfingin hefur ítrekað lagt til að það fari fram efnisleg umræða í þinginu, í allsherjarnefnd og í samvinnu við samfélagið um það með hvaða hætti stjórnmálahreyfingar eigi að starfa. Sú umræða hefur ekki fengist tekin á dagskrá. Það er einfaldlega ekki hægt að gera ráð fyrir því að stjórnmálaflokkar fái eða þurfi tugi eða hundruð milljóna í leynileg fjárframlög til þess að geta sinnt starfi sínu. Það er algjör óhæfa að halda því fram. Stjórnmálaflokkar þurfa ekki nærri því eins mikið fé og þeir sjálfir telja. Framlög til stjórnmálaflokka og peningar stjórnmálahreyfinga eru einfaldlega því marki brennd að í þeim málum er ekki til neitt sem heitir nóg þannig að löggjafinn verður að setja slíku skýr mörk.
Eitt af því sem Hreyfingin hefur t.d. lagt til er að það verði algerlega lokað fyrir nafnleynd, þó að 20 þús. kr. kaffisjóður megi svo sem rata inn á bækur stjórnmálaflokka, að framlög frá fyrirtækjum verði einfaldlega bönnuð, því þau hafa ekkert með það að gera að styðja stjórnmálaflokka, og að hið opinbera sjái til þess að stjórnmálahreyfingar fái viðunandi starfsaðstöðu og nægilegt fjármagn til að ráða sér framkvæmdastjóra og aðstoðarmann framkvæmdastjóra, koma sér upp hóflegu skrifstofuhúsnæði og fundaraðstöðu og viðeigandi aðstöðu í hverju kjördæmi. Til þess að jafnræði viðgangist í þessum málum þá þarf að gera spillingu sem á sér stað vegna peninga óþarfa, þó að hún verði kannski aldrei að öllu leyti upprætt. Það þarf bara að gera það óþarft fyrir stjórnmálaflokka að þurfa að taka við fé frá fyrirtækjum og einstaklingum. Það er hægt að gera það með þessum hætti.
Þingmenn á Alþingi Íslendinga vita það nákvæmlega eins vel og ég hvers vegna fyrirtæki og einstaklingar styðja stjórnmálasamtök með háum framlögum. Stjórnmálaflokkar telja sig t.d. þurfa að kosta gríðarlega miklu til auglýsinga í kosningum. Slíku er einfaldlega hægt að mæta með því sem gert er hjá flestum siðuðum nágrannaþjóðum okkar með einhverju sem Bretar kalla „Party Political Broadcast“, þ.e. að ljósvakafjölmiðlar séu skyldaðir með lögum til að opna fyrir útsendingar af hálfu stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. Það er bara hluti af þeirri samfélagslegu skyldu sem fylgir því að eiga og reka ljósvakafjölmiðil.
Auglýsingar stjórnmálaflokka í ljósvakafjölmiðlum eru bannaðar með lögum í fjölda Evrópuríkja. Það þykir ekkert tiltökumál. Auðvitað velta menn fyrir sér hvort það sé verið að hefta þar tjáningarfrelsi og málfrelsi. En það skiptir máli hvað varðar lýðræðið, ef það á að vera lýðræði, að það sé ekki skekkt í þágu peningaaflanna, því þá er ekki um lýðræði að ræða heldur einfaldlega kaupin eins og þau gerast á eyrinni, sá sem býður best fær mest.
Þetta er ekki það umhverfi sem hefur verið farsælt fyrir Íslendinga hingað til. Við sitjum hér á þingi dag eftir dag til þess að karpa um það hvað gerðist í aðdraganda hrunsins, hverjum það hafi verið að kenna og hverjar séu leiðirnar út úr því. Ræturnar að því hruni liggja eins og allir vita m.a. í þessu samspili þar sem stjórnmálamenn voru erindrekar sérhagsmunaaðila, eins og t.d. LÍÚ í kvótamálinu eða Samtaka fjármálafyrirtækja í bankahruninu, þar sem menn komust meira að segja upp með það að fara ekki að lögum. Það er það kerfi sem gerði það m.a. að verkum að hér varð hrun og hér hefur lengi ekki verið til staðar neitt sem virðist vera í ætt við einhvers konar siðvit í fjármögnun stjórnmálaflokka.
Ég mun því að sjálfsögðu krefjast þess að þetta mál verði aftur tekið inn í allsherjarnefnd milli 2. og 3. umr. og óska eftir því að gestir verði fengnir á fund nefndarinnar og að málið verði rætt efnislega og að þetta mál verði einfaldlega sett á ís fram yfir næsta þing þangað til hægt verður að taka þann tíma og þá umræðu sem þarf virkilega til þess að finna út með hvaða hætti þessum málum er best fyrir komið á Íslandi. Almenningur á ekki skilið að alþingismenn og Alþingi Íslendinga og stjórnmálaflokkarnir, fjórflokkurinn, kasti þessari risastóru blautu tusku beint í andlitið á honum aftur og segi: Við ætlum að sópa skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis undir teppið. Við ætlum ekki að taka mark á því sem hún segir. Við ætlum ekki að hlusta á það. Við ætlum að fara okkar fram með alveg nákvæmlega sama hætti og gert var fyrir hrunið. Það er bara algerlega ólíðandi. Þetta frumvarp (Forseti hringir.) er þvílíkur áfellisdómur … Fyrirgefðu, forseti.
(Forseti (RR): Hv. þingmaður. Forseti hyggst gera hlé nú kl. eitt og spyr hv. þingmann hvort hann eigi langt eftir af ræðu sinni og geti þá haldið henni áfram eftir matarhlé.)
Ég mun halda ræðu minni áfram eftir matarhlé.
(Forseti (RR): Hv. þingmaður. Forseti hyggst gera hlé í hálftíma. Fundur hefst aftur kl. 13.30. Fundinum er frestað. Við framhald þingfundar tekur hv. þm. Þór Saari að nýju til máls. Fundinum er frestað.) (Forseti hringir.)