138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

stefna í uppbyggingu í orkumálum.

[13:32]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Það voru miklar væntingar bundnar við þann stöðugleikasáttmála sem ríkisstjórnin gerði við aðila vinnumarkaðarins þann 25. júní 2009. Það er fróðlegt að rifja upp ummæli forustumanna ríkisstjórnarinnar við það tækifæri og þau atriði stöðugleikasáttmálans sem lúta að eflingu atvinnulífs. Um atvinnumál segir þar m.a., með leyfi forseta, „að fara skuli í framkvæmdir til að stuðla að aukinni atvinnu þar sem lögð er áhersla á að greiða götu stórframkvæmda og að ráðist verði í samstarf við lífeyrissjóði um þátttöku í fjármögnun verkefna“.

Í stefnuræðu sinni í maí 2009 sagði forsætisráðherra m.a., með leyfi forseta:

„Auka þarf traust og trú á íslenskt efnahagslíf, örva innlendar fjárfestingar í atvinnulífinu, stuðla að beinum erlendum fjárfestingum … Atvinnulífið er og verður megingrundvöllur velferðar hér á landi. Ríkisstjórnin mun því með markvissum aðgerðum … skapa traustari grundvöll fyrir íslenskt atvinnulíf til framtíðar. …

Jafnframt er mikilvægt að huga að samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs í alþjóðlegum samanburði. …

Það er skylda okkar að búa íslensku atvinnulífi jafngóð eða betri rekstrarskilyrði en í helstu samkeppnislöndunum.“

Það stóð ekki á lausninni frá hæstv. ríkisstjórn í þessum málum. Hún hækkaði skatta og álögur á fyrirtæki og atvinnulíf til að ná þessu markmiði sínu.

Beint um stöðugleikasáttmálann sagði forsætisráðherra:

„Ríkisstjórnin telur slíkt samráð [eina] forsendu þess að hagkerfið og þjóðfélagið allt geti unnið sig út úr þeim mikla vanda sem það stendur frammi fyrir nú og að árangur náist í ríkisfjármálum til framtíðar.“

Í stefnuræðu sinni í október 2009 sagði hún:

„Mörg jákvæð teikn eru á lofti og fjöldi stórverkefna í augsýn. Ég nefni Búðarhálsvirkjun, endurbyggingu álversins í Straumsvík, álver í Helguvík, gagnaver og tónlistarhúsið sem nú er að rísa. Ég nefni stórverkefni sem rætt hefur verið um við lífeyrissjóðina, svo sem“ vegaframkvæmdir og margt fleira.

Virðulegi forseti. Það er rétt ár síðan þessi orð féllu og það er auðvitað alvarlegt mál að vinnusömum höndum ríkisstjórnarinnar skuli ekki verða meira úr verki en raun ber vitni.

Þann 26. júní 2009 sagði fjármálaráðherra þetta, með leyfi forseta:

„… það að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld, þ.e. ríki, sveitarfélög og lífeyrissjóðir, sýna mikla ábyrgð með aðild sinni að stöðugleikasáttmálanum.“

Eins og alþjóð veit hafa aðilar vinnumarkaðarins sagt sig frá stöðugleikasáttmálanum vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar og það þrátt fyrir að fjármálaráðherra hafi sagt í fyrravetur að ríkisstjórnin hefði ekkert svikið af því sem til hennar friðar heyrði í svonefndum stöðugleikasáttmála, svo notuð séu hans eigin orð. Það er ekki gott, virðulegi forseti, ef hann trúir þessu sjálfur. Veruleikafirring ríkisstjórnarinnar er algjör sem sést best á viðbrögðum þeirra sem hana skipa. Það er eins og að blessaðir ráðherrarnir búi ekki í sama landi og við hin. Sjónhverfingar þeirra við að reyna að fegra ástandið eru aumlegar, eða hver trúir því sem hæstv. forsætisráðherra sagði hér fyrr í dag í ræðustól Alþingi, að það væri engin ástæða til að draga upp dökka mynd af stöðu efnahagsmála?

Þetta er mikil veruleikafirring.

Virðulegi forseti. Það er ekki einu sinni hægt að taka þessu sem gríni, jafnvel þó að það sé leið stjórnarliða í dag til að koma sér frá ósæmilegum ummælum.

Svo komu forustumenn ríkisstjórnarinnar í ræðustól Alþingis í gær og kölluðu eftir samstöðu. Það er auðvitað ekkert annað en ósvífni þegar fram hefur verið gengið eins og dæmin sanna gagnvart þeim sem nú á að kalla til leiks. Ríkisstjórnin hefur ekkert traust í samfélaginu og það traust verður ekki endurunnið þó að stokkað hafi verið upp í ónýtri ríkisstjórn sem kemur sér ekki saman um nokkurn skapaðan hlut.

Iðnaðarráðherra hefur lítið komist áfram með áform sín þrátt fyrir góðan vilja á köflum. Nú er svo komið að hún er að verða samdauna kyrrstöðuöflunum í Vinstri grænum. Þessi ríkisstjórn er uppvís að því að reyna eins og hægt er að tefja allar framkvæmdir sem snúa að orkufrekum iðnaði, nýleg dæmi sýna það. Hvað átti hæstv. iðnaðarráðherra við þegar hún sagði að það væri helst við Alcoa Ísland að sakast hversu hægt miðaði í atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslu? Ráðherrann sagði að Alcoa hefði ekki sýnt þann áhuga sem búist var við varðandi nýtt álver á Bakka. (Iðnrh.: Það er bara satt.)

Það vita allir sem þekkja málið að þetta er útúrsnúningur og felur í sér alvarleg skilaboð til þeirra erlendu fyrirtækja sem hér vilja starfa. Með ákvörðun flokkssystur hæstv. iðnaðarráðherra voru framkvæmdir vegna Bakka settar í sameiginlegt umhverfismat sem hefur seinkað öllum framkvæmdum þar um tvö ár.

Norðlingaölduveita er ein hagkvæmasta virkjanaframkvæmd sem við eigum völ á. Hún hefur einnig í för með sér minnstu umhverfisröskun allra virkjanamöguleika. Nú hafa iðnaðar- og umhverfisráðherra sammælst um að slá þennan möguleika af. Þær segja reyndar um þetta mál að þær hafni því að friðlýsingunni sé stefnt gegn Norðlingaölduveitu, heldur snúist friðlýsingin um friðlýsinguna sjálfa og það að vernda einstaka svæði. Hvernig er hægt að skilja þetta? Það er ekki hægt að bjóða upp á svona málflutning.

Ég fer þess á leit við hæstv. iðnaðarráðherra að í svari sínu hér á eftir geri hún grein fyrir viðbrögðum sínum gagnvart háværri gagnrýni aðila vinnumarkaðarins á ríkisstjórnina vegna aðgerðaleysis hennar í atvinnumálum. Einnig óska ég þess að hún geri í stuttu máli grein fyrir afstöðu sinni gagnvart álveri í Helguvík, áhuga Alcoa á því að byggja álver á Bakka, nýtingu Norðlingaölduveitu og virkjanaáformum í neðri hluta Þjórsár. (Forseti hringir.) Einnig óska ég eftir því að hún greini frá viðræðum sínum við lífeyrissjóði um aðkomu að fjármögnun vegna virkjana- og (Forseti hringir.) stóriðjuframkvæmda og hvort hún hafi átt samráð við forustumenn Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna geggjaðra hugmynda þeirra um (Forseti hringir.) hækkun á orkuverði Orkuveitu Reykjavíkur. Sú ákvörðun ein og sér mun leiða af sér aukna erfiðleika fyrir iðnfyrirtæki í landinu.

Einnig vil ég að hún geri (Forseti hringir.) okkur grein fyrir afstöðu sinni gagnvart ECA (Forseti hringir.) í Keflavík.