138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

stefna í uppbyggingu í orkumálum.

[13:43]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa þörfu umræðu. Ákveðin vonbrigði felast í þeim svörum ráðherra og ræðu að hún kvarti yfir því að þessi mál séu til umræðu á vettvangi þingsins. (Gripið fram í: Nei, nei, nei …) Nú hefur hæstv. ráðherra einungis setið á ráðherrastóli í rétt rúmlega ár og ætti þess vegna ekki að kvarta yfir því að við ræðum þennan mikilvæga málaflokk.

Í ljósi þess að hæstv. ráðherra talar um að við í stjórnarandstöðunni förum með staðlausa stafi held ég að við þurfum að rifja upp ákveðna hluti. Ég vil að hæstv. ráðherra svari því hvort það sé ekki alveg örugglega rétt að aðilar vinnumarkaðarins hafi fullyrt að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við gefin fyrirheit um atvinnuuppbyggingu í stöðugleikasáttmálanum sem ríkisstjórnin skrifaði undir á síðasta ári. Bæði verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins hafa fullyrt þetta með mjög sannfærandi hætti og við í stjórnarandstöðunni höfum tekið undir það.

Mér sýnist því miður í dag að öfgarnar hjá hæstv. ríkisstjórn, og þá sérstaklega hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, þegar kemur að orkumálum og verklegum framkvæmdum séu gjörsamlega komnar út fyrir öll mörk. Það er eins og að menn lýsi yfir ánægju sinni ef mál ná ekki fram að ganga.

Ég ber virðingu fyrir íslenskri náttúru en við þurfum líka að stuðla að einhverjum framförum í landinu. 13.000 Íslendingar eru án atvinnu. Talið við verkfræðinga, talið við iðnaðarmenn, talið við verkfræðinga og verktaka eins og ég sagði hérna áðan. Þessir aðilar sjá því miður fram á mjög dauflegan vetur. Verkefnum er að fækka. Við þurfum að spýta hér í lófana. Við erum í þessari umræðu að hvetja iðnaðarráðherra til góðra verka en hæstv. ráðherra má ekki loka augunum fyrir því að gagnrýnisraddir eru á ríkisstjórnina úr öllum áttum í samfélaginu og ég hvet hæstv. ráðherra til þess að spýta í lófana, (Forseti hringir.) koma af stað framkvæmdum þannig að við getum farið að fjölga störfum á ný í íslensku samfélagi.