stefna í uppbyggingu í orkumálum.
Virðulegur forseti. Hér fer fram umræða í kunnuglegum hjólförum. Menn tala um staðreyndir málsins og veruleikafirringu. Staðreynd málsins er einfaldlega sú að stóriðjustefnan hefur strandað og það sennilega til framtíðar. Það er sá veruleiki sem við búum við í dag. Og miðað við það hvernig ég heyri Sjálfstæðisflokkinn tala enn þá í þessum málum eru þeir algjörlega út úr kortinu og varasamt að hleypa þeim að stjórnvelinum a.m.k. næstu tíu árin.
Hvað varðar orkuvinnslumál á Íslandi þarf einfaldlega að vinna málið með vönduðum hætti. Það þarf að vinna það með því að láta rammaáætlun um áætlun virkjana- og raforkukosta fara í gegn með eðlilegum hætti. Það þarf að gera náttúruverndaráætlun til langs tíma, þannig þarf að vinna málin. Það þarf að afgreiða t.d. 20/20-áætlunina, það þarf að gera þetta með heildstæðum hætti. Að tala um Norðlingaölduveitu sem hagstæðan virkjanakost er alveg út í hött. Norðlingaalda og það svæði er einsdæmi (Gripið fram í.) á heimsvísu (Gripið fram í.) og þó að það fari lítið land undir vatn miðað við nýjustu virkjanaáætlanir eyðist vatnsmagnið úr Þjórsá. Það er það sem menn eru að segja. Það er verið að eyðileggja náttúruundur á heimsmælikvarða.
Hatur Sjálfstæðisflokksins á íslenskri náttúru er komið út fyrir allt velsæmi og sjálfstæðismenn eiga að skammast sín fyrir hvernig þeir tala. Það er alveg ömurlegt að heyra hvernig þeir vilja malbika og virkja (TÞH: … málflutningur …) hverja einustu sprænu og allt hálendið. Við búum einfaldlega í öðrum heimi en gert var fyrir 30 árum og menn þurfa að leggja höfuðið í bleyti (Gripið fram í: Hvaða rugl er í þér?) og reyna að finna út úr því (Gripið fram í: Þú ert í allt öðrum heimi.) hvernig á að lifa af í þeim heimi en ekki heiminum sem var til fyrir 30 árum. (Gripið fram í.) (TÞH: Óskaplegt bull er þetta.)