stefna í uppbyggingu í orkumálum.
Virðulegi forseti. Á síðustu 24 mánuðum hafa 22.500 störf tapast á Íslandi. Í gær kynnti ríkisstjórnin 20 stefnumál ríkisstjórnar Alþýðubandalagsins sem formenn stjórnarflokkanna eru sammála um að leggja áherslu á. Þar er ekki einu orði minnst á fjölgun starfa, ekki einu orði minnst á að ráðast í orkufrekar framkvæmdir. Það sem minnst er á er að það eigi að gera atvinnulausum lífið léttbærara. Þetta er skammarlegt.
Í gær fluttu hæstv. forsætis- og fjármálaráðherra boðskapinn um að landið væri að rísa og þökkuðu sér það landris. Í dag birtust nýjar hagtölur um að landsframleiðslan hefði dregist saman um 7,3% að raunvirði fyrstu sex mánuði ársins. Fjárfesting einkaaðila dróst saman um 3,2% á fyrsta ársfjórðungi, fjárfesting opinberra aðila um 11,3%, þjóðarútgjöld um 7,4% en ljósi punkturinn, eða hitt þó heldur, er að samneyslan jókst um 1%.
Í gær sagði hæstv. forsætisráðherra:
„Hagvöxtur hefur mælst undanfarna sex mánuði, meira en hálfu ári fyrr en reiknað hafði verið með.“
Er hæstv. forsætisráðherra að blekkja eða er það e.t.v. svo, sem er mun alvarlegra, að hæstv. ráðherra viti ekki hvað er í gangi? Ríkisstjórninni er algjörlega fyrirmunað að skilja raunveruleikann. Það er vegna skattahækkana og ráðleysis ríkisstjórnar Alþýðubandalagsins sem svona er komið fyrir okkur. Kreppunni er ekki lokið, þökk sé þessu fólki. (Gripið fram í: … koma okkur í land.)