fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Róberti Marshall andsvarið í annað sinn. Hvað varðar traust á Borgarahreyfingunni varð hún til með engum peningum og rak alla kosningabaráttu sína með eitthvað í kringum 1 millj. kr. Það sýnir sig, og við rákum okkur á það, að allt tal fjórflokksins um nauðsyn þess að hafa tugi og hundruð milljóna milli handanna er staðlaust. Það er hægt að gera hlutina öðruvísi. Við höfum einmitt lagt fram mjög málefnalegar tillögur sem gæta þess jafnræðis sem hv. þingmaður var að tala um. Það þarf að vera jafnræði milli stjórnmálahreyfinga hvað þetta varðar. Það næst ekki fram með leynilegum fjárframlögum eða nánast ótakmörkuðum peningum frá fyrirtækjum.
Hvað varðar möguleika einstaklinga til að bjóða sig fram átta ég mig ekki alveg á því hvað hv. þingmaður var að fara. Það eru ekki einstaklingskjördæmi á Íslandi. Einstaklingar hafa hingað til boðið sig fram í prófkjörum innan ákveðinna stjórnmálaflokka. Það hefur gert það að verkum að sumir þeirra hafa hrökklast af þingi og þurft að segja af sér — vegna einmitt þessa. Það er mjög óæskileg aðferð. Ég held að stjórnmálaflokkar eigi að koma því við öðruvísi, bara með sínum innri reglum, með hvaða hætti þeir velja fólk á framboðslista. Það eru til margar aðferðir til að gera það. Versta aðferðin er sú að frambjóðendur séu ofurseldir nauðsyn þess að þurfa á miklum peningum að halda.
Eins og ég sé þetta er allt vont við þetta frumvarp. Ég legg til að menn leggi sitt lóð á vogarskálarnar með okkur til að reyna að ná fram betri niðurstöðu í þetta mál.