138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.

597. mál
[14:23]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Þór Saari hefur haldið hérna mikla ræðu og eiginlega bara komið með neikvæða punkta. Hann hefur ekkert sagt um hvernig hann ætlar að leysa vandamálið nema einhverja sögu af Borgarahreyfingunni sem kostaði voða lítið en hafði náttúrlega athygli fjölmiðla mjög sterkt á sér vegna hópsamkundu úti á Austurvelli.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann nokkurs. Segjum að hann yrði ráðinn til einhvers banka til að halda erindi um ýmis mál til að kynna fyrir kúnnum bankans, samstarfið stæði yfir í heilt ár og vildi svo til að næði fram að kosningum: Hvernig mundi hann flokka það? Segjum að hann yrði bara ráðinn í vinnu hjá þessum viðkomandi banka á fullum launum en þyrfti ekki að starfa neitt sérstaklega mikið — er það ekki styrkur?

Þá vil ég spyrja hann annars. Unga stúlku sem er afskaplega menntuð og klár langar að taka þátt í prófkjöri — hvað á hún að gera? Það þekkir hana enginn. Hvað á hún að gera? Hvernig á hún að koma sér á framfæri? Hvernig á hún að láta fólk vita að hún sé svona ung og klár? Það veit kannski að hún er ung en ekki að hún sé klár og menntuð. Hvað gerir hún?

Þá vil ég spyrja um ríka manninn og tekjuháa: Má hann nota eigin eignir og eigin tekjur til að kosta risavaxna kosningabaráttu? Hvað segir hv. þingmaður við því? Hann getur notað 40, 50, 60 eða 100 millj. kr. í það.